Sigmundur: Hægt að nota arð úr bönkum í nýjan spítala við Vífilsstaði

sigmundur davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vill að stjórn­völd skoði hvort ekki sé best að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði í Garða­bæ. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar á vef­síðu sína í dag. 

Í Morg­un­blað­inu í dag er rætt við bæj­ar­stjór­ann í Garðabæ um mögu­leik­ann á upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Bæj­ar­yf­ir­völd þar segj­ast reiðu­búin í sam­starf um bygg­ingu nýs spít­ala þar, og hægt sé að liðka fyrir mál­inu á ýmsan hátt. 

Sig­mundur Davíð er mjög jákvæður gagn­vart þess­ari hug­mynd. „Mér finnst ekki hægt að líta fram­hjá þessum kosti nú þegar bæj­ar­stjór­inn hefur stigið fram með þeim hætti sem hann gerð­i,“ skrifar Sig­mund­ur. Hann hafi oft á und­an­förnum árum lýst þeirri skoðun sinni að hann telji æski­legt að reisa nýjan spít­ala ann­ars staðar en við Hring­braut, eins og nú er áform­að. 

Auglýsing

„Að mínu mati ber stjórn­völdum að bregð­ast við þessu til­boð­i ­Garða­bæj­ar, taka því fagn­andi og skoða hvort ekki sé best, í ljósi allra aðstæðna að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Með því væri hægt að byggja spít­al­ann hrað­ar, á hag­kvæm­ari hátt og miklu, miklu bet­ur.“ 



Á Víf­ils­stöðum væri hægt að hanna nýjan glæsi­legan spít­ala frá grunni, segir Sig­mundur Dav­íð. „Allt fyrsta flokks í sam­ræmi við mögu­leika og þarfir sam­tím­ans. Eng­inn fjár­austur í að reyna að gera við hálf­ónýta hluti, tjasla því saman sem ekki passar saman og laga óhent­ugar bygg­ingar að heil­brigð­is­þjón­ustu 21. ald­ar. Allt hannað sem ein heild sem vinnur eins og vél um leið og hugað er að mann­lega þætt­in­um, því að fólki líði vel í umhverf­inu og það sé til þess fallið að lyfta and­anum og stuðla að betri and­legri og lík­am­legri líðan sjúk­ling, gesta og starfs­fólks.“ 

Hann segir að margt muni vinna með ef spít­al­inn verði byggður á nýjum stað. Ekki bara staða rík­is­sjóðs sem hafi batn­að. „Verð­mæti fast­eigna og lóða í miðbæ Reykja­víkur hefur hækkað gríð­ar­lega frá því að síð­ast var lagt mat á stað­setn­ingu spít­al­ans. Með því að selja hús­næði og lóðir gætu ríki og borg náð tug­millj­arða tekj­um. Þessar tekjur gæti rík­is­sjóður nýtt til að standa straum af umtals­verðum hluta bygg­ing­ar­kostn­aðar nýs spít­ala.“ 

Hægt væri að selja hús­næði og lóðir og nýta fjár­magn strax til að flýta fyrir fram­kvæmdum á nýjum stað þótt spít­al­inn myndi ekki flytja strax. „Einnig gæti ríkið veitt öðru fjár­magni, t.d. arði úr bönk­unum í spít­ala­bygg­ing­una þar til tekjur af sölu eigna við Hring­braut skil­uðu sér.“ Aðrar leiðir komi til greina en hvaða leið sem farin yrði „myndu tugir millj­arða skila sér í rík­is­sjóð við það að færa spít­al­ann. Pen­ingar sem ekki yrðu til ella.“ Þá pen­inga mætti nýta í aðra inn­viða­upp­bygg­ingu, ekki síst á lands­byggð­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None