Bankasýslan segir að ranglega hafi verið staðið að sölunni á Borgun

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Lands­bank­inn hefði átt að standa öðru­vísi að söl­unni á hlut sínum í Borgun en gert var. Setja hefði átt hlut­inn í opið sölu­ferli og rök­stuðn­ingur bank­ans fyrir því að það hafi ekki verið gert er ófull­nægj­andi. Leiðin sem var valin olli Lands­bank­anum tjóni og skerti bæði traust og trú­verð­ug­leika bank­ans. Það sé mjög alvar­legt mál. Þetta er álit Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­an­um, sem kynnt var á fundi fjár­laga­nefndar í morg­un. Frá þessu er greint á mbl.­is.

Banka­sýslan hefur enn fremur birt bréf sem hún sendi til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um Borg­un­ar­söl­una á vef sín­um. Þar segir að það sé nið­ur­staða Banka­sýsl­unnar að „sölu­með­ferðin hafi varpað veru­legum skugga á árangur Lands­bank­ans und­an­farin miss­eri og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki.[...]­Mik­il­vægt er að Lands­bank­inn end­ur­heimti traust eig­enda sinna, við­skipta­vina og fjár­festa sem og almenn­ings í land­inu. Af þeim þeim sökum telur Banka­sýsla rík­is­ins að banka­ráð Lands­bank­ans verði að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana til að end­ur­heimta það traust sem bank­inn tap­aði vegna sölu­með­ferð­ar­inn­ar. Fer stofn­unin fram á að hlut­höfum í Lands­bank­anum hf. verði hið fyrsta gerð grein fyrir því með hvaða hætti banka­ráðið telur rétt að bregð­ast við og ekki siðar en tveimur vikum fyrir aðal­fund sem fram fer þann 14. apríl nk."

Lands­bank­inn sendi í kjöl­farið frá sér til­kynn­ingu þar sem bank­inn sagði að hann myndi svara Banka­sýsl­unni innan þess frests sem gef­inn hefur verið og að svarið verði birt opin­ber­lega. Í til­kynn­ing­unni kemur einnig fram að Fjár­mála­eft­ir­litið muni birta álit sitt á söl­unni innan nokk­urra daga.

Auglýsing

Umfangs­mikil umfjöllun um söl­una á Borg­un­ar­hlutnum

Kjarn­inn hóf umfjöllun um sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna í lok nóv­em­ber 2014. Þá upp­lýsti hann, í frétta­skýr­ingu eftir Magnús Hall­dórs­son, að hlut­ur­inn hefði verið seldur bak­við luktar dyr og hvaða fjár­festar það höfðu verið sem keyptu hlut­inn. Magnús hlaut blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku vegna umfjöll­unar um Borg­un­ar­söl­una í byrjun mars. Rit­stjórn Kjarn­ans hafði verið til­nefnd til sömu verð­launa árið áður fyrir umfjöllun sína um söl­una á hlut Lands­bank­ans í Borg­un.

Í kjöl­farið sýndi Kjarn­inn meðal ann­ars fram á að miðað við hefð­bundna mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast við í fjár­fest­ingum hafi verðið sem greitt var fyrir verið lágt, hvort sem miðað er við fyr­ir­tæki erlendis eða skráð fyr­ir­tæki á Íslandi. Kjarn­inn skoð­aði einnig ítar­lega eig­enda­stefnu rík­is­ins þegar kemur að eign­ar­hlutum í bönk­um, og hvort salan á eign­ar­hlutn­um, bak við luktar dyr, sam­ræmd­ist henni. Enn fremur voru skrif­aðar sam­an­tektir um fyrri við­skipti og sam­keppn­is­sjón­ar­mið sem meðal ann­ars ítar­lega um eig­enda­stefnu rík­is­ins þegar kemur að eign­ar­hlutum í bönk­um, og hvort salan á eign­ar­hlutn­um, bak við luktar dyr, sam­ræmd­ist henni.

Hinn 29. apríl í fyrra var síðan frá því greint að nýir eig­endur Borg­unar hefðu notið góðs af við­skipt­unum nokkrum mán­uðum fyrr, en sam­þykkt var að greiða 800 millj­ónir til hlut­hafa í arð, í fyrsta skipti frá árinu 2007. Þetta vakti upp spurn­ing­ar, meðal ann­ars á hinu póli­tíska sviði, um hvort hlut­ur­inn hefði verið seldur á und­ir­verð­i. 

Hálfum mán­uði síð­ar, var síðan greint frá því að Lands­bank­inn hefði aug­lýst til sölu lít­inn eign­ar­hlut í Borg­un, sem hann eign­að­ist við yfir­töku á Spari­sjóði Vest­manna­ey­inga, sam­tals 0,41 pró­sent hlut. Í þetta skiptið var ákveðið að hafa sölu­ferlið opið, en banka­ráð Lands­bank­ans, með Tryggva Páls­son sem for­mann, hafði þá við­ur­kennt mis­tök við söl­una á eign­ar­hlutnum í Borg­un, og að betra hefði verið að selja hlut­inn í opnu sölu­ferli. Kom þetta fram í ræðu hans á aðal­fundi bank­ans. 

Lands­bank­inn neit­aði að gefa upp sölu­verðið á 0,41 pró­sent hlutnum í fyrstu, en upp­lýsti svo um það í jan­úar á þessu ári, þegar salan var aftur í brennid­epli. Þá höfðu Morg­un­blaðið og 365 miðlar fjallað ítar­lega um innra virði Borg­un­ar, meðal ann­ars eftir að upp­lýs­ingar komu fram um það að félagið myndi hagn­ast veru­lega á því að fá hlut­deild í alþjóð­legum við­skiptum VISA Europe og VISA Inc. 

Hér er hægt að lesa ítar­lega sam­an­tekt á helstu stað­reyndum Borg­un­ar­máls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None