Tveir af hverjum þremur vildu ekki nefna ráðherra sem þeir treysta

Ríkisstjórn
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, nýt­ur lang­mest trausts þeirra ráð­herra sem nú skipa rík­is­stjórn Íslands, sam­kvæmt nýrri könnun frétta­stofu 365 miðla. Alls segj­ast þrettán pró­sent aðspurðra ­treysta Bjarna best, sjö pró­sent segj­ast treysta Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra best en sex pró­sent Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syn­i ­for­sæt­is­ráð­herra. Mesta athygli vekur að ein­ungis þriðj­ungur þeirra sem svöruð­u könn­un­inni voru reiðu­búnir til að nefna ráð­herra sem þeir báru mest traust til­. Þá sögð­ust 48 pró­sent aðspurðra vera óákveðnir í afstöðu sinni en 19 pró­sent ­neit­uðu að svara spurn­ing­unni.

Í frétt um könn­un­ina í Frétta­blað­inu í dag kemur fram að einnig hafi verið spurt um hvaða ráð­herra njóti minnst trausts. Nið­ur­staðan verður kynnt í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld og er sér­stak­lega tekið fram að fleiri svar­endur hafi tekið afstöðu til þeirr­ar ­spurn­ing­ar.

Aðferð­ar­fræð­i könn­un­ar­innar var þannig að hringt var í 1.082 mann þar til náð­ist í 794 ­sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki. Svar­hlut­fallið var því 73,4 pró­sent af voru þeir ­spurð­ir: Hvaða ráð­herra berðu mest traust til? Af þeim sem svör­uðu vildi því ein­ungis 262 taka afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar, 103 nefndu Bjarna Bene­dikts­son, um 58 Ólöfu Nor­dal og um 55 Sig­mund Dav­íð. Fæstir nefndu Sig­rúnu Magn­ús­dótt­ur um­hverf­is­ráð­herra, eða eitt pró­sent svar­enda. Það þýðir að rúm­lega tveir hafi ­sagt að þeir treysti Sig­rúnu best.

Auglýsing

Rík­is­stjórnin mæld­ist með 36,7 pró­sent stuðn­ing í síð­ustu birtu könnun Gallup.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None