Sanders berst áfram þrátt fyrir að vera með „elítufjölmiðla“ á móti sér

Bernie Sanders er ekki sáttur við það hvernig stærstu fjölmiðlar Bandaríkjanna hafa staðið sig í kosningabaráttunni. Svo virðist sem stuðningur þeirra við Hillary Clinton - oft opinber í leiðaraskrifum - sé að vega þungt þessa dagana.

h_52577518.jpg
Auglýsing

Bernie Sand­ers, sem nú berst við Hill­ary Clinton um að verða for­seta­efni Demókrata, hefur misst byr úr seglum bar­áttu sinnar að und­an­förnu, og margir skrifa það á umfjöllun helstu fjöl­miðla í Banda­ríkj­un­um, ekki síst dag­blaða sem halda einnig út rit­stjórn­ar­vinnu á vefn­um. 



Hill­ary hefur fengið opin­beran stuðn­ing frá hverju stór­blað­inu á fætur öðru að und­an­förnu, en þau sem hafa verið ein­dregn­ust í sínum stuðn­ingi eru The New York Tímes, sem í rit­stjórn­ar­skrif­um, meðal ann­ars frá 31. jan­úar síð­ast­liðnum, hefur opin­berða stuðn­ing sinn við að hún verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna, og síðan The Was­hington Post. Hinn 23. mars síð­ast­lið­inn bætt­ist svo Roll­ing Stone í hóp­inn með opin­berri stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu.



Þetta hefur Sand­ers verið ósáttur með, og talað skýrt um að „el­ítu­fjöl­miðl­ar“ Banda­ríkj­anna vilji hann ekki og snið­gangi kraft­mikla bar­áttu hans nær alveg, og bein­línis vilji ekki ræða um málin sem skipta mestu máli.



Úrslit for­vala að und­an­förnu hjá Demókrötum komu ekki bein­línis á óvart, nema kannski fyrir þá sem héldu í von­ina um að kann­anir væru hættar að geta spáð fyrir um nið­ur­stöðu kosn­ing­anna með mik­illi vissu eins og gerð­ist í Michigan vik­una áður þegar Sand­ers vann óvænt þvert á spár. Þessi staða var meðal ann­ars til umfjöll­unar í frétta­skýr­ingu hér á vef Kjarn­ans í síð­ustu viku.

Auglýsing

Orðið erfitt fyrir Sand­ers

En eins og spáð var fyrir um þá sigr­aði Clinton öll þau ríki sem í pott­inum voru nema Ill­in­ois (156 kjör­menn). Þar sigr­aði Sand­ers með þriggja pró­sentu­stiga mun. Í lok þessa kvölds hafði hún sigrað Flór­ída (214), Mis­so­uri (71), Norður Kar­ólínu (107) og Ohio (143). Af þeim 691 kjör­mönnum sem í pott­inum voru þetta kvöld, fór Hill­ary heim með 365 og Sand­ers með 326. 

Til þess að vinna útnefn­ing­una þarf 2.383 kjör­menn eða atkvæði. Í dag er Hill­ary með í heild­ina 1.606 kjör­menn, sem skipt­ist í 1.139 kjör­menn og 467 ofur­kjör­menn en það eru atkvæði sem elíta flokks­ins hefur lofað henni og mun greiða á lands­fund­inum sjálfum í júlí. Sand­ers er með í heild­ina 851 kjör­menn og þar af aðeins 26 ofur­kjör­menn. Sam­kvæmt frétta­miðl­inum MSNBC þá þarf Sand­ers að vinna 65 pró­sent af öllum kjör­mönn­unum sem eftir eru í pott­inum svo hann eigi mögu­leika á útnefn­ing­unni, en enn eftir á að kjósa á 29 stöðum í land­inu.

Í könn­unum á lands­vísu hafa Hill­ary og Sand­ers verið að mæl­ast með sam­bæri­legt fylgi, oft á tíð­um, nú síð­ast í könnun Bloomberg, þá mæld­ist Sand­est með einu pró­sentu­stigi meira fylgi en Hill­ary. Kann­anir sem þessar segja hins vegar litla sögu um hvor stendur betur að vígi, því rýna þarf í stöðu mála í hverju ríki til að þess að átta sig á því hvernig staðan er í reynd.

Trump það besta sem gat komið fyrir Hill­ary

Sand­ers er ennþá með mik­inn kraft í sinni kosn­inga­bar­áttu og fyllir hallir víða, þegar hann heldur ræður um stefnu­mál sín. Hann hefur talað skýrt gegn „el­ít­unni“ í Was­hington og náð þannig að miklum stuðn­ingi hjá ungu fólki og þeim sem krefj­ast breyt­inga í Banda­ríkj­un­um, einkum þegar kemur að ójöfn­uði. Þegar for­vals­kosn­ing­arnar hófust, og úrslit komu fram, stefndi margt í jafna bar­áttu Hill­ary og Sand­ers, en nú virð­ist allt benda til þess að Hill­ary sé að hafa nokkuð þægi­legan sig­ur. 

Í frétta­skýr­ingu á vef Was­hington Post í gær, kemur fram að upp­gangur Don­ald Trump, hafi unnið með Hill­ary Clint­on. Hat­rammar deilur hafa víða verið milli stuðn­ings­manna Trump og Sand­ers, á meðan bar­átta Hill­ary hefur verið hóf­stillt­ari og margir þeir sem stað­setja sig nálægt miðj­unni í banda­rískum stjórn­mál­um, virð­ast vera að sýna Hill­ary stuðn­ing, fremur en Sand­ers. Allt eykur þetta lík­urnar á að Hill­ary verði for­seta­efni Demókrata.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None