Aflandsfélag í eigu fjölskyldu Dorritar í Panamaskjölum

Skartgripafyrirtæki Moussaieff fjölskyldunnar átti félag sem skráð var á Bresku Jómfrúareyjunum og kemur fyrir í gögnum frá Mossack Fonseca. Hvorki forseti Íslands né Dorrit segjast hafa heyrt um félagið áður og að móðir hennar muni ekki eftir því.

Ólafur Ragnar og Dorrit
Auglýsing

Félag í eigu fjöl­skyldu Dor­rit­ar Moussai­eff, eig­in­konu Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, for­seta Íslands, átti félag ­skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félag­ið, sem heitir Lasca Fin­ance Limited, er að finna í  gögnum frá­ panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca. Árið 2005 seld­i ­fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Moussai­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­senta hlut sinn í Lasca F­in­ance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussai­eff og „Mr­s." Moussai­eff. Þetta kemur fram í gögnum sem Kjarn­inn og Reykja­vik Grapevine hafa undir hönd­um.  

Ólafur Ragn­ar ­fór í við­tal til frétta­kon­unar Christ­i­ane Aman­po­ur, á banda­rísku ­sjón­varps­stöð­inni CNN, síð­ast­lið­inn föstu­dag. Aman­pour spurði Ólaf Ragnar um Panama­skjölin og hreint út hvort hann eða fjöl­skylda hans væri tengd aflands­fé­lög­um:

„Átt þú ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eig­in­kona þín ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eitt­hvað eftir að koma í ljós varð­andi þig og fjöl­skyld­u þína?” spurði hún. Ólafur var afdrátt­ar­laus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, ­nei. Það verður ekki þannig.”

Auglýsing


Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til emb­ættis for­seta Íslands vegna Lasca Fin­ance. Í svari þess seg­ir: „Hvorki for­seti né Dor­rit vita neitt um þetta félag né hafa heyrt af því áður. Faðir Dor­ritar er lát­inn og móðir henn­ar, sem er 86 ára, man ekki eftir neinu slíku félag­i."

Með skráð heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum

Fyr­ir­tæki Moussai­eff ­fjöl­skyld­unnar heitir Moussai­eff Jewell­ers Limited. Í árs­reikn­ingum félags­ins frá árunum 1999 til­ 2005 kemur fram að fyr­ir­tæki Moussai­eff-­fjöl­skyld­unnar ætti hlut í félagi sem heitir Lasca Fin­ance Limited, sem sett var á fót árið 1999. Eig­end­ur ­fyr­ir­tæk­is­ins voru S. Moussai­eff og A. Moussai­eff, sem áttu ráð­andi hlut og Moussai­eff Jewell­ers Limited sem átti tíu pró­sent.

Úr ársreikningi Moussaieff Jewellers Limited vegna ársins 2006.

Lasca Fin­ance er með heim­il­is­fest­i á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. Í skjölum sem Kjarn­inn hefur undir höndum kemur fram að félagið var á þeim tíma í umsjón panamísku lög­fræði­stof­unnar Mossack Fon­seca og greiddi árgjald fyrir þá þjón­ust­u.  Í árs­reikn­ingum Moussai­eff Jewell­ers Limited, sem skilað var til fyr­ir­tækja­skrá­ar í Bret­landi, kemur fram að Lasca Fin­ance fái greitt umtals­verðar fjár­hæðir í vexti á hverju ári (e. inter­est receivable), sem gefur til kynna að Lasca hafi lánað ein­hverjum fé. Sam­an­lögð fjár­hæð þeirra vaxta sem Lasca átti að fá greitt frá árinu 2000 til 2005 er tæp­lega sjö millj­ónir punda.  Á gengi dags­ins í dag er sú upp­hæð jafn­virð­i 1.262 millj­ónum íslenskra króna.

Á árinu 2005 seldi Moussai­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­sent hlut sinn í Lasca Fin­ance. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Moussai­eff Jewell­ers Limited voru kaup­end­urnir S. Moussai­eff og Mrs." Moussai­eff. Kaup­verðið var 375 þús­und pund, eða 68 millj­ónir íslenskra króna. Eftir þann tíma er félagið ekki lengur skráð í bókum Moussai­eff Jewell­ers Limited.

Dor­rit færði lög­heim­ili sitt

Schlomo Moussai­eff lést 1. júlí 2015, þá níræð­ur, en eig­in­kona hans Alisa er enn á lífi. Hún er 86 ára gömul og er skráður eig­andi Moussai­eff Jewell­ers Limited. Hjónin eiga þrjár dæt­ur, Dor­rit, Tamöru og Shar­on.

Dor­rit og Ólafur Ragnar giftu sig þann 14. maí 2003. Ólafur hafði þá verið for­set­i Ís­lands í sjö ár. Á heima­síðu for­seta­emb­ætt­is­ins segir að Dor­rit hafi um ára­bil feng­ist við skart­gripa­við­skipti með áherslu á sjald­gæfa steina og einnig stundað ýmis önnur við­skipt­i."

Tæpum níu árum síð­ar, þann 27. des­em­ber 2012, flutti Dor­rit lög­heim­ili sitt frá Bessa­stöðum til Bret­lands. Sá ­gjörn­ingur vakti mikla athygli og umræður á Íslandi þar sem íslensk lög ger­a ráð fyrir því að hjón eigi að hafa lög­heim­ili í sama landi. Eftir að Frétta­blaðið greindi frá þessu í júní 2013 sendi Dor­rit frá sér yfir­lýs­ingu þar ­sem hún sagði meðal ann­ars:

Þegar horfur voru á að eig­in­maður minn yrði ekki lengur for­set­i ­gerði ég ráð­staf­anir til að geta sinnt meira fyrri störfum mínum í London, einkum í ljósi þess að for­eldrar mín­ir, sem stjórnað hafa ­fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu, eru nú háaldr­að­ir.“ Færslan á lög­heim­ili hafi verið gerð á grund­velli skatta­laga og í sam­ræmi við ráð­gjöf sér­fræð­inga.

Í nýj­ársávarpi sínu 2012 til­kynnti Ólafur Ragnar að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram aft­ur til emb­ættis for­seta Íslands. Honum snérist síðar hugur og sigr­aði í kosn­ing­um það sum­ar, nokkrum mán­uðum áður að Dor­rit færði lög­heim­ili sitt.

Ólafur Ragn­ar til­kynnti í síð­asta nýj­ársávarpi að hann ætl­aði ekki að bjóða sig aftur fram til for­seta. Hann hefur gegnt emb­ætt­inu frá árinu 1996. Í síð­ustu viku boð­að­i hann skyndi­lega til blaða­manna­fundar og greindi frá því að honum hafi aft­ur snú­ist hugur og ætli að sækj­ast eftir því að sitja sem for­seti í fjögur ár til­ við­bót­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None