Dorrit átti hlut í aflandsfélögum og tengist svissneskum bankareikningum

Forsetafrúin Dorrit Moussaieff hefur tengst minnst fimm bankareikningum í Sviss í gegnum fjölskyldu sína og að minnsta kosti tveim aflandsfélögum, samkvæmt gögnum sem uppljóstrarar létu Le Monde, Süddeutshe Zeitung og ICIJ í té.

ólafur og Dorrit
Auglýsing

Dor­rit Moussai­eff, eig­in­kona Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar for­seta Íslands, hefur tengst minnst fimm banka­reikn­ingum í Sviss í gegnum fjöl­skyldu sína og að minnsta kosti tveim aflands­fé­lög­um. Þetta kemur fram í gögnum sem upp­ljóstr­arar létu Le Monde, Südd­eutshe Zeit­ung og ICJ fá og kall­ast Swiss Leaks og Panama Papers. Greint frá þessu í frétt á heima­síðu Reykja­vik Media í dag. Auk þess birt­ist fréttin víða ann­ars­staðar í heims­press­unni, meðal ann­ars á vef The Guar­dian og á vef Sudd­eutche Zeit­ung.

Í fréttum miðl­anna segir m.a. að Moussai­eff-­fjöl­skyld­an, þar á meðal systur Dor­rit­ar, þæ Tamara og Shar­on, hafi átt reikn­inga með allt að 80 milljón dala inn­stæðum í HSBC bank­anum í Sviss á árunum 2006 og 2007. Þar kemur þó sér­stak­lega fram að Dor­rit virð­ist ekki sjálf koma að flestum reikn­ing­un­um. Auk þess sýni upp­lýs­ing­arnar að Dor­rit hafi átt hlut á móti fjöl­skyldu sinni í  Jaywick Properties Inc, sem skráð er til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og félag­inu Moussai­eff Sharon Trust. Sér­stak­lega er tekið fram að gögnin sýni ekki fram á að for­seta­frúin hafi gert neitt ólög­leg­t. 

Á vef Reykja­vik Media segir að Dor­rit hafi ekki viljað svara spurn­ingum um hvort hún tengd­ist félög­unum þegar eftir því var leit­að. Viðskipti sín hefðu alltaf verið í sam­ræmi við lög og að þau væru einka­mál. 

Auglýsing
Lög­menn Dor­ritar sögðu við fjöl­miðl­ana sem unnu að frétt­inni að hún og Ólafur Ragnar hafi alltaf verið með aðskildan fjár­hag og hafi þar af leið­andi ekk­ert vitað um fjár­hags­stöðu hvors ann­ars. Einnig var haft sam­band við Örn­ólf Thors­son for­seta­rit­ara sem sagði að Ólafur Ragnar hafi ekk­ert vitað um aflands­fé­lögin og að hann hefði aldrei heyrt um þau. Hann hafi aldrei nokkurn tím­ann haft upp­lýs­ingar um fjár­mál eig­in­konu sinnar eða ann­arra fjöl­skyldu­með­lima henn­ar.

Neit­aði að eitt­hvað ætti eftir að koma í ljós um sig eða fjöl­skyldu sína

Kjarn­inn greindi frá því i síð­ustu viku að félag í eigu fjöl­­skyldu Dor­­rit­ar átti félag ­skráð á Bresku Jóm­frú­­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félag­ið, sem heitir Lasca Fin­ance Limited, er að finna í  gögnum frá­ panamísku lög­­fræð­i­­stof­unni Mossack Fon­­seca. Árið 2005 seld­i ­fjöl­­skyld­u­­fyr­ir­tækið Moussa­i­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­­senta hlut sinn í Lasca F­in­ance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussa­i­eff og „Mr­s." Moussa­i­eff. Þetta sýndu gögn sem Kjarn­inn og Reykja­vík Grapevine eru með undir hönd­um. 

Nokkrum dögum áður, nánar til­tekið föstu­dag­inn 22. apr­íl, hafði Ólafur Ragnar farið í við­tal til frétta­­kon­unar Christ­i­ane Aman­po­­ur, á banda­rísku ­sjón­varps­­stöð­inni CNN. Aman­pour spurði Ólaf Ragnar um Pana­ma­skjölin og hreint út hvort hann eða fjöl­­skylda hans væri tengd aflands­­fé­lög­um: „Átt þú ein­hverja aflands­­reikn­inga? Á eig­in­­kona þín ein­hverja aflands­­reikn­inga? Á eitt­hvað eftir að koma í ljós varð­andi þig og fjöl­­skyld­u þína?” spurði hún. Ólafur var afdrátt­­ar­­laus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, ­nei. Það verður ekki þannig.”

Kjarn­inn beindi fyr­ir­­spurn til emb­ættis for­­seta Íslands vegna Lasca Fin­ance í síð­ustu viku. Í svari þess seg­ir: „Hvorki for­­seti né Dor­­rit vita neitt um þetta félag né hafa heyrt af því áður. Faðir Dor­­ritar er lát­inn og móðir henn­­ar, sem er 86 ára, man ekki eftir neinu slíku félag­i."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None