Leiðtogar í valdavímu þurfa „sífellt stærri skammta“ og geta þróað með sér fíkn í völd

Efnafræðilegt samband virðist vera á milli valda og hroka, skrifar taugalæknir á Landspítalanum. Takmörkun á valdatíma leiðtoga getur verið leið til að sporna við valdhroka og spillingu.

Bessastaðir
Auglýsing

Bæði ein­ræð­is­herrar sem sitja lengi á valda­stóli og lýð­ræð­is­lega kjörnir stjórn­mála­leið­tog­ar, fjár­mála­menn og aðrir valda­menn geta orðið valda­fíkn og spill­ingu að bráð, og það virð­ist vera að það sé hægt að finna efna­fræði­legt sam­hengi á milli valda og hroka. 

Þetta kemur fram í grein um völd og valda­fíkn sem Torfi Magn­ús­son, tauga­læknir á Land­spít­al­an­um, skrifar í nýjasta tölu­blað Lækna­blaðs­ins. 

Torfi segir að breyt­ingar sem verða á hegðun margra sem öðl­ast áhrif og völd hafi lengi verið mönnum hug­leikn­ar. Þær rann­sóknir sem gerðar hafi verið á efna­fræði­legu sam­hengi valda og hroka hafi einkum tengst karl­horm­ón­inu testó­steróni og vellíð­un­ar- eða vímu­horm­ón­inu dópamín­i. 

Auglýsing

Þótt dópamín sé efni vellíð­unar teng­ist það líka mjög spennu og fíkn og efna­fræði­leg breyt­ing geti orðið hjá vellukk­uðum valda­manni og sig­ur­veg­ara. Það getur orsakað valda­vímu. „Eins og með aðra vímu getur mynd­ast þol og sífellt stærri skammta og fleiri sigra þarf þá til að ná sömu áhrif­um. Auk valda­vímunnar getur þró­ast valda­fíkn. Hvort úr verður hreinn vald­hroki ræðst af fleiri þátt­um, meðal ann­ars tíma­lengd valda og valda­þörf ein­stak­lings­ins,“ skrifar Torf­i. 

Valda­víma geti verið mik­il­væg og jafn­vel nauð­syn­leg fyrir leið­toga undir miklu álagi. „Hins vegar getur valda­víman leitt leið­tog­ann inn í víta­hring. Til að við­halda vellíð­an­inni þarf síend­ur­tekið flæði testó­steróns og dópamíns og það kallar á sífellt nýja sigra. Úr verður fíkn, valda­fíkn. Hitti valda­fíknin á sjálf­mið­aðan ein­stak­ling með mikla þörf fyrir per­sónu­tengd völd sprettur upp vald­hroki. Vald­hrok­anum fylgir spill­ing og fleiri lest­ir.“ 

Góður leið­togi þurfi þannig að vera fremstur meðal jafn­ingja og vilja hafa völd og sig­ur­vilja, en sig­ur­vilj­inn þurfi „að vera fyrir „okk­ur“ en ekki fyrst og fremst fyrir „mig.““ Þannig sé valda­mik­ill leið­togi, fullur vald­hroka, heim­inum hættu­leg­ur. „Lýð­ræði var inn­leitt í Grikk­landi sem svar við vald­hroka og spill­ingu og til að tak­marka valda­tíma leið­toga. Stjórn­ar­skrár­bundin tak­mörkun á valda­tíma leið­toga nútím­ans getur stutt við sama mark­mið.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None