Sigmundur Davíð ætlar að halda áfram

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins ætlar að halda áfram í stjórn­mál­um. Hann ætlar að bjóða sig fram sem for­maður flokks­ins á ný og til þings í haust. Þetta kom fram í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un. Hann seg­ist gera ráð fyrir því að hann njóti áfram stuðn­ings til þess, og það kæmi honum á óvart ef flokk­ur­inn hans ætl­aði að „láta þessa atburða­r­ás“ hafa áhrif á það, þegar ráð­ist hefði verið að hon­um. 

Sig­mundur ræddi í þætt­inum við Pál Magn­ús­son um atburða­rás síð­ustu vikna, frá því að hann fór á fund Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, for­seta Íslands, í byrjun apr­íl. Hann gagn­rýndi for­set­ann harð­lega, meðal ann­ars fyrir að hafa brotið trúnað um fund þeirra. Hann sagði for­set­ann hafa rokið til í geðs­hrær­ingu og haldið blaða­manna­fund um mál­ið. 

Sig­mundur seg­ist vera að hefja ferð um landið í dag þar sem hann ætli að ræða við kjós­end­ur. Hann sagð­ist ekki endi­lega gera ráð fyrir því að kosn­ingar verði haldnar í haust, menn hafi haft „ein­hverjar hug­mynd­ir“ um það en það hafi alltaf legið fyrir að það væri bara ef hægt væri að ganga frá öllum stóru mál­un­um. „Nú er ég ekki að sjá það ger­ast fyrir sept­em­ber, októ­ber.“ Hann sagð­ist jafn­framt hafa heyrt það, ekki bara í sínum eigin flokki, að það væri ekki hent­ugt að halda kosn­ingar í haust. „Það sem ég heyri menn telji ekki liggja á kosn­ingum í haust, það er enda margt mjög baga­legt við það að fara í kosn­ingar þegar við erum á þeim tíma­punkti að geta farið í sókn.“ 

Auglýsing

Fram­sókn hafi ekki þvingað hann til afsagnar

Sig­mundur sagði í þætt­inum að flokk­ur­inn hans hafi „engan veg­inn“ þvingað hann til afsagn­ar. Hann hafi talið að það væri veru­leg hætta á því að rík­is­stjórnin myndi falla og hefði verið upp­lýstur það að ákveðnir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefðu séð tæki­færi til þess að nýta sér þessa stöðu sem upp var kom­in, jafn­vel að sprengja stjórn­ar­sam­starfið og halda kosn­ingar til að stokka upp í sínum röð­um. Þess vegna ákvað hann að segja af sér til að koma í veg fyrir þessa stöðu. 

Sig­mundur Davíð taldi ekki á það hætt­andi, að á meðan að æsing­ur­inn var mik­ill, þá þyrfti ein­hvern veg­inn að höggva á hnút­inn og loka ein­hverjum leiðum sem ein­hverjir töldu að væri góð leið til að fella rík­is­stjórn­ina. Það hafi honum tek­ist.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None