Austurríkismenn höfnuðu þjóðernissinnaða forsetaframbjóðandanum

Norbert Hofer laut í lægra haldi fyrir frambjóðanda með tengsl við Græningjaflokkinn. Hofer byggði kosningabaráttu sína á andúð á ESB og ótta við aukinn straum hælisleitenda.

Norbert Hofer tapaði naumlega í forsetakosningunum í Austurríki.
Norbert Hofer tapaði naumlega í forsetakosningunum í Austurríki.
Auglýsing

Óháði fram­bjóð­and­inn Alex­ander Van der Bellen sigr­aði í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna í Aust­ur­ríki, sem fram fóru í gær. Hann hafði betur en fram­bjóð­andi hins hægri- og þjóð­ern­is­sinn­aða Frels­is­flokks, Nor­bert Hofer. BBC greinir frá þessu. 

Hofer hafði verið spáð sigrinum og hafði betur eftir kosn­ing­arnar í gær en þegar utan­kjör­fund­ar­at­kvæði höfðu verið talin í dag kom í ljós að Van der Bellen náði for­skoti. Hann hefði ann­ars orðið fyrsti þjóð­höfð­ingi Evr­ópu­sam­bands­ríkis sem er langt til hægri. 

Hofer hafði verið með 51,9% í kosn­ing­unum og Van der Bellen 48,1%. En 750 þús­und póst­lögð atkvæði höfðu úrslita­vald­ið. Kosn­inga­úr­slitin þykja hafa sýnt skipt­ing­una í aust­ur­rísku sam­fé­lagi, Van der Bellen hafði betur í níu af tíu stærstu borg­unum á meðan Hofer hafði yfir­burði á strjál­býlum svæð­u­m. 

Auglýsing

Van der Bellen var óháður en var studdur af Græn­ingja­flokkn­um. Hann er mjög fylgj­andi Evr­ópu­sam­band­inu og kosn­inga­bar­áttan mark­að­ist af því, á meðan Hofer hafði byggt kosn­inga­bar­áttu sína að miklu leyti á andúð á Evr­ópu­sam­band­inu og ótta fólks við fjölgun hæl­is­leit­enda. 

Þetta var í fyrsta skipti frá lokum seinni heim­styrj­ald­ar­innar sem hvorki Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn né Þjóð­ar­flokk­ur­inn í Aust­ur­ríki áttu full­trúa í seinni umferð for­seta­kosn­inga í land­inu. Þeir flokkar eru hefð­bundnir flokkar og sitja nú saman í rík­is­stjórn. 

For­seta­emb­ættið er að mestu leyti tákn­rænt en for­seti getur þó leyst upp neðri deild þings­ins og þannig þvingað fram kosn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None