Þingrofsskjöl Sigmundar Davíðs ekki til í málaskrá forsætisráðuneytisins

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra segir að þingrofsgögn sem forseti Íslands hefur greint frá að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi komið með til hans á fund séu ekki til í málaskrá ráðuneytisins.

Sigmundur Davíð og Svandís
Auglýsing

Gögn um þing­rof, sem tengj­ast fundi Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar for­seta Íslands þann 5. apríl síð­ast­lið­inn, eru ekki skráð í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins. Þetta kemur fram í svari Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Krist­jáni Möll­er, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. 

„Eru skjöl um þing­rof og nýjar kosn­ingar sem und­ir­búin voru í aðdrag­anda fundar með for­seta Íslands 5. apríl sl. sem for­seti hefur greint frá opin­ber­lega eða önnur gögn tengd sama fundi skráð í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins? Eru gögnin aðgengi­leg og þá hvar?“ spurði Krist­ján for­sæt­is­ráð­herra. Hann svar­aði með ein­földum hætti. „Fyr­ir­spurnin felur í sér tvær spurn­ing­ar, svarið við þeim er nei.“ 

Sig­mundur Davíð fór á fund Ólafs Ragn­ars að morgni 5. apríl síð­ast­lið­inn. Áður en hann fór til Bessa­staða setti hann inn færslu á Face­book-­síðu sína þar sem hann sagð­ist ætla að „rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta“ ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru ekki reiðu­búnir að styðja rík­is­stjórn undir hans for­sæt­i. 

Auglýsing

Ólafur Ragnar greindi svo frá því á blaða­manna­fundi að loknum fund­inum með for­sæt­is­ráð­herra að sá síð­ar­nefndi hefði óskað eftir því að for­set­inn veiti honum heim­ild til að rjúfa þing. Ólafur Ragnar sagð­ist ekki hafa verið til­bú­inn að veita slíka heim­ild. 

Sig­mundur Davíð sagði í kjöl­farið að Ólafur Ragnar færi með rangt mál. „Form­leg til­laga um þing­rof var hvorki borin upp á fund­inum né kynnt for­seta eins og skilja mátti af ummælum for­seta Íslands að fundi lokn­um. For­sæt­is­ráð­herra tjáði for­seta að hann hygð­ist bera þing­rof­s­til­lögu form­lega upp við for­seta ef nið­ur­staða um fram­an­greint lægi fyr­ir,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­in­u. 

Þessu hafn­aði svo for­set­inn, og sagði atburða­rás­ina alveg skýra af hans hálfu og ljóst hvað Sig­mundur hefði vilj­að. Hann nefndi því til sönn­unar að emb­ætt­is­menn hefðu fylgt Sig­mundi Davíð á Bessa­staði með skjala­tösku rík­is­ráðs­ins með í för. Ragn­hildur Arn­ljóts­dótt­ir, ráðu­neyt­is­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og rit­ari rík­is­ráðs, sagði í kjöl­farið að engin sér­stök taska væri ein­kennd sem rík­is­ráð­staska. Hún sagði einnig að til þess að til­laga um þing­rof væri form­leg þyrfti for­sæt­is­ráð­herra að afhenda for­set­anum und­ir­rit­aða til­lögu um þing­rof og óska eftir áritun for­seta. 

Fréttin hefur verið upp­færð. Upp­runa­lega var mis­ritað að fyr­ir­spurnin hefði verið frá Svandísi Svav­ars­dótt­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None