Lagabreytingar til að sporna gegn skattsvikum í gegnum aflandsfélög

Bjarni Benediktsson hefur lagt fram frumvarp sem á að sporna gegn skattsvikum í gegnum aflandsfélög. Frumvarpið er viðbragð við upplýsingum úr Panamaskjölunum. Starfshópur á að vinna gegn nýtingu skattaskjóla.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem á að sporna við skattsvikum vegna eign­ar­halds í lág­skatta­ríkj­um. Frum­varpið er við­bragð við upp­lýs­ingum sem fram hafa komið um eignir Íslend­inga í skatta­skjól­um, einkum í gegnum Panama­skjöl­in. 

Upp­lýs­ingar um mögu­leg und­an­skot frá skatti „kalla á taf­ar­laus og afdrátt­ar­laus við­brögð af hálfu íslenskra stjórn­valda,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. Með frum­varp­inu er miðað að því að búa svo um að þrengt sé að þeim kostum og leiðum sem hægt er að nota til að fara á svig við skatta­lög. 

Í frum­varp­inu eru lagðar til eft­ir­far­andi breyt­ing­ar:

Auglýsing

  • Tak­mörkun á taps­frá­drætti félaga í lág­skatta­ríki.

  • Tak­mörkun á sam­runa og skipt­ingu yfir landa­mæri.

  •  Flutn­ingar lög­heim­ilis eða eigna til ríkja sem telj­ast lág­skatta­ríki verði tak­mark­aðir veru­lega.

  • End­ur­skoðun á CFC-á­kvæð­inu, sem fjallar um skatt­lagn­ingu aðila sem eiga beina eða óbeina eign­ar­að­ild að félög­um, sjóðum eða stofn­unum sem eru heim­il­is­föst í lág­skatta­ríkj­um, í átt til frek­ari skýr­ing­ar.

  • End­ur­skoðun á upp­lýs­inga­skyldu fjár­mála­stofn­ana og lög­manna.

  • Heim­ild til end­ur­á­kvörð­unar skatts lengd úr sex árum í tíu ár vegna tekna og eigna í lág­skatta­ríkjum sem ekki hefur verið gerð full­nægj­andi grein fyrir í skatt­skil­um.          

  •  Fyrn­ing­ar­tími sakar lengdur úr sex árum í tíu ár vegna tekna í lág­skatta­ríkj­um.

  • Aukið aðgengi inn­heimtu­manna að upp­lýs­ingum um eigna­stöðu gjald­enda.

  • Efl­ing áhættu­stjórn­unar og aukin grein­ing­ar­vinna – grein­ing­ar­deild toll­stjóra.

  • Hert við­ur­lög vegna rangrar upp­lýs­inga­gjafar við inn­flutn­ing.

Stofna starfs­hóp gegn nýt­ingu skatta­skjóla

Bjarni hefur einnig skipað starfs­hóp til að gera til­lögur að breyt­ingum sem eiga að mynda frek­ari aðgerða­á­ætlun stjórn­valda gegn skattaund­anskotum og nýt­ingu skatta­skjóla almennt. Í hópnum eiga meðal ann­ars sæti Skúli Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri, Bryn­dís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri og Snorri Olsen toll­stjóri. Einnig eiga sæti lög­fræð­ingar hjá for­sæt­is- og fjár­mála­ráðu­neyti, rík­is­skatt­stjóra og toll­stjóra og við­skipta­fræð­ingur hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra. 

Hóp­ur­inn á að skila skýrslu með til­lögum sínum fyrir lok júní til Bjarna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None