Guðni nýtur mests fylgis og Davíð vex í hverri kosningaspá

Niðurstöður Kosningaspárinnar sýna að Guðni Th. Jóhannesson er enn langvinsælasti forsetaframbjóðandinn. Fylgi Davíðs Oddssonar vex stöðugt en nær þó ekki 20 prósent.

Guðni Th. Jóhannesson nýtur stöðugt mest fylgis samkvæmt kosningaspánni.
Guðni Th. Jóhannesson nýtur stöðugt mest fylgis samkvæmt kosningaspánni.
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ing­ur, hlyti 64,5 pró­sent atkvæða til emb­ættis for­seta Íslands ef kosið yrði nú, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýj­ustu kosn­inga­spár­innar sem gerð er úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda. Guðni hefur í þremur kosn­inga­spám mælst með lang mest fylgi þeirra níu sem eru í kjöri.

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, mælist með 17,6 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni 25. maí, rúm­lega tveimur pró­sentu­stigum meira en hann var með fyrir tæpum tveimur vik­um. Fylgi Dav­íðs hefur vaxið stöðugt í þau þrjú skipti sem kosn­inga­spálík­an­inu hefur verið beitt á for­setak­ann­an­ir.

Andri Snær Magna­son, rit­höf­und­ur, mælist með 10,7 pró­sent atkvæða. Hann hefur hæst farið í 11,4 pró­sent í kosn­inga­spánni 13. maí. Halla Tóm­as­dótt­ir, athafna­kona, hlyti 2,8 pró­sent atkvæða sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Það er örlítið meira en hún hefur mælst með hingað til.

Auglýsing

Aðrir fram­bjóð­endur njóta minna en eitt pró­sent fylgis sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Það eru Sturla Jóns­son, Elísa­bet Jök­uls­dótt­ir, Ást­þór Magn­ús­son, Hildur Þórð­ar­dóttir og Guð­rún Mar­grét Páls­dótt­ir. Frétta­stofa 365 hefur boðað úrslit úr könnun sinni á fylgi fram­bjóð­enda í dag. Sú könnun mun ráða því hverjir hljóta þátt­töku­rétt í kapp­ræðum fram­bjóð­enda á sömu sjón­varps­stöð í kvöld og þurfa fram­bjóð­endur að mæl­ast með meira en 2,5 pró­sent fylgi til að fá að birt­ast á skján­um.

Kosn­­­inga­­­spá Kjarn­ans og Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ing­ar. Kjarn­inn hefur áður birt nið­ur­stöður kosn­inga­spálík­ans­ins fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 fyrir fylgi fram­boða í Reykja­vík. Þá verða nið­ur­stöður lík­ans­ins um fylgi stjórn­mála­flokka í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum birtar á vef Kjarn­ans í aðdrag­anda kosn­ing­anna í haust. Í nýj­­­ustu kosn­­­inga­­­spánni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar eru nýj­­­ustu kann­an­­­irnar vegn­­­ar: 

  • Skoð­ana­könnun Gallup fyrir stuðn­ings­menn Dav­íðs Odds­sonar 19. til 25. maí (vægi 25,3%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 12. til 20. maí (vægi 24,4%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 14. maí (vægi 14,5%)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu 10. til 13. maí (vægi 19,3%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 9. maí (vægi 16,4%)

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­inga­­­spá Bald­­­urs fyrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar og reynd­ist sú til­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­inga­­­spá.is má lesa nið­­­ur­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­inga­úr­slit­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None