Opnað á rannsókn á allri einkavæðingu bankanna

Ögmundur Jónasson er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Ögmundur Jónasson er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Auglýsing

Rann­sókn á þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í kaupum á 45,8 pró­sent ­eign­ar­hluta rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. á að ljúka í síð­asta lagi 31. des­em­ber 2016. Einn maður mun skipa nefnd­ina sem fer með þá rann­sókn. Á grund­velli nið­ur­stöðu henn­ar, og að lok­inni yfir­ferð stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, mun sú nefnd leggja mat á „hvort hún geri til­lögu um frek­ari rann­sókn á einka­væð­ingu Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins hf., Lands­banka Íslands hf. og Bún­að­ar­banka Íslands hf., sbr. fyrr­greinda ályktun frá 7. nóv­em­ber 2012 þar um." Þetta kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn­ina sem Ögmundur Jón­as­son, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, lagði fram seint í síð­ustu viku.

Þar segir einnig að þegar stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hefur lokið sinni yfir­ferð um málið og rann­sókn rann­sókn­ar­nefndar á þátt­töku Hauck & Auf­häuser liggur fyr­ir, verði „mark­visst unnt að afmarka nánar mögu­lega rann­sókn á grund­velli álykt­unar Alþingis frá 7. nóv­em­ber 2012, um rann­sókn á einka­væð­ingu Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins hf., Lands­banka Íslands hf. og Bún­að­ar­banka Íslands hf."

Því er þeim mögu­leika haldið opnum að ráð­ist verði í rann­sókn á einka­væð­ingu þeirra banka sem íslenska ríkið átti hlut í, og voru seldir í einka­væð­ing­ar­ferlum í kringum síð­ustu ald­ar­mót. Sú rann­sókn yrði í sam­ræmi við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að ráð­ast í slíka sem sam­þykkt var á Alþingi í nóv­em­ber 2012. Af henni hefur þó aldrei orð­ið. Ekk­ert er minnst á rann­sókn á því sem kallað hefur verið síð­ari einka­væð­ing bank­anna, þegar samið var við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að eign­ast hluti í end­ur­reistum bönkum á árinu 2009. Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, hefur ítrekað kallað eftir slíkri rann­sókn.

Auglýsing

Umboðs­maður opnar gam­alt mál að nýju

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþing­is, kall­aði eftir því í bréfi sem hann sendi á stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þann 19. maí síð­ast­lið­inn að Alþingi skipi rann­sókn­ar­nefnd til að kalla fram nýjar upp­lýs­ingar um aðkomu Hauck& Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins svo­kall­aða á Bún­að­ar­bank­anum árið 2003. Ástæðan væri sú að Tryggvi hefði undir höndum nýjar upp­lýs­ingar og ábend­ingar um raun­veru­lega þátt­töku Hauck & Auf­häuser, þýsks einka­banka, í kaup­unum á Bún­að­ar­bank­an­um. 

Þegar kaupin áttu sér stað var málið kynnt þannig að Hauck & Auf­häuser væri á meðal kaup­enda að bank­anum og var aðkoma erlends banka talin styrkja stöðu S-hóps­ins gagn­vart kaup­un­um. Sú skýr­ing sem gefin var um aðkomu Hauck & Auf­häuser hefur lengi verið dregin í efa og því oft verið haldið fram í opin­berri um­ræðu að bank­inn hafi verið lepp­ur.

Í grein­ar­gerð sem fylgir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á mál­inu segir að ekki liggi fyrir á þessu stigi í hverju þær upp­lýs­ingar sem umboðs­maður er með undir höndum séu fólgn­ar, hver sé upp­runi þeirra eða með hvaða hætti þær eru til þess fallnar að upp­lýsa mál­ið. „Leggja ber hins vegar áherslu á að ónafn­greindur ein­stak­lingur hefur snúið sér til umboðs­manns Alþingis með upp­lýs­ingar sem að mati umboðs­manns eru til þess fallnar að leiða í ljós hvar og hvernig megi afla gagna og upp­lýs­inga um það hver hafi í raun verið þátt­taka hins þýska banka í sölu á umræddum hlut í Bún­að­ar­banka Íslands hf. Í ljósi stöðu umboðs­manns sem trún­að­ar­manns Alþingis og fyrri aðkomu hans að mál­inu, sem nefnd­ar­maður í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis á falli bank­anna 2008, þykir ekki óvar­lagt að leggja til grund­vallar mat hans á að umræddar upp­lýs­ingar muni leiða í ljós hver var í raun aðkoma hins þýska banka að kaupum á eign­ar­hluta rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None