Ari Edwald og Eyþór Arnalds í stjórn framboðs Davíðs

Guðni Th. Jóhannesson og Davíð Oddsson mælast með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Guðni er með um 60 prósent en Davíð um 20 prósent.
Guðni Th. Jóhannesson og Davíð Oddsson mælast með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Guðni er með um 60 prósent en Davíð um 20 prósent.
Auglýsing

Ari Edwald, fyrrum for­stjóri 365 miðla og nú for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar, situr í stjórn félags sem stofnað var utan um for­seta­fram­boð Dav­íðs Odds­son­ar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, þann 9. maí síð­ast­lið­inn. Stjórn­ar­for­maður þess félags er Eyþór Arn­alds, fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Árborg og fjár­fest­ir. 

Auk þeirra tveggja sitja í stjórn félags­ins Erla Gunn­laugs­dótt­ir, fjöl­miðla­full­trúi fram­boðs Dav­íðs. Hún er dóttir Gunn­laugs Sæv­ars Gunn­laugs­son­ar, stjórn­ar­for­manns Ísfé­lags Vest­manna­eyja, en eig­endur þess eiga stóran hlut í Morg­un­blað­inu.

Frá þessu er greint í DV í dag. 

Auglýsing

Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar.Þar segir einnig að félag utan um fram­boð Guðna Th. Jóhann­es­sonar hafi verið stofnað sex dögum áður en félag Dav­íðs, eða 2. maí. Í stjórn þess sitja Þor­gerður Anna Arn­ar­dótt­ir, tals­maður fram­boðs Guðna, Eliza Reid, eig­in­kona hans, og hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Lúð­vik Örn Stein­ars­son. Kosn­inga­sjóður Andra Snæs Magna­sonar var stofn­aður í jan­úar og sitja þeir Brynjar Pét­urs­son Young, stund­ar­kenn­ari við HR, og Pálmi Guð­munds­son, for­stöðu­maður ljós­vaka­miðla Sím­ans, í stjórn hans. Ekki kemur fram í DV hvenær fram­boðs­fé­lag Höllu Tóm­as­dóttur var stofnað en þar segir að Brimar Aðal­steins­son sé stjórn­ar­for­maður þess.

Samkvæmt síð­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans, sem birt var 29. maí, er Guðni Th. með 60,5 pró­sent stuðn­ing í emb­ætti for­seta Íslands. Davíð kemur næst á eftir honum með 20,3 pró­sent fylgi og Andri Snær mælist með 11,7 pró­sent. Halla mælist með 3,8 pró­sent stuðn­ing kjós­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None