„Neyðarbrautinni“ lokað í sumar – Enn beðið eftir fyrirmælum frá ráðuneytinu um lokun

Nú eru aðeins tvær flugbrautir opnar á Reykjavíkurflugvelli.
Nú eru aðeins tvær flugbrautir opnar á Reykjavíkurflugvelli.
Auglýsing

Norð­aust­ur-suð­vest­ur­flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli hefur verið lokað í allt sum­ar. Þetta stað­festir upp­lýs­inga­full­trúi Isa­via. Flug­mönnum var gert við­vart um lok­un­ina í morg­un. Flug­brautin hefur hlotið heitið „neyð­ar­braut­in“ í umræð­unni í tengslum við lokun hennar og brott­hvarf flug­vall­ar­ins úr Vatns­mýr­inni.

Í skila­boð­unum, svoköll­uðu NOTAM sem flug­mönnum er skylt að skoða áður en farið er um flug­völl­inn, kemur fram að flug­braut­inni hafi verið lokað í morgun klukkan 9:53 og að hún opni ekki aftur fyrr en á mið­nætti aðfar­arnótt 15. sept­em­ber.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Isa­via er lok­unin ekki að beiðni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­isns. Braut­inni hafi aðeins verið lokað í sumar vegna þess hversu lítið notuð hún er. Enn er beðið eftir fyr­ir­mælum frá ráðu­neyt­inu um algera lokun flug­braut­ar­inn­ar. Óvíst er hvenær þau fyr­ir­mæli muni ber­ast, en sam­kvæmt Guðna Sig­urðs­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Isa­via, þá er gert ráð fyrir að þau komi fljót­lega.

Auglýsing

Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum dóm hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu væri skylt að loka flug­braut­inni í sam­ræmi við sam­komu­lag sem Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi ráð­herra flug­mála, gerði við Reykja­vík­ur­borg haustið 2013. Þar var því lofað að flug­braut­inni yrði lok­að. Reykja­vík­ur­borg réðst í kjöl­farið í upp­bygg­ingu íbúða­hverfis við nyrðri enda braut­ar­inn­ar. Þegar Ólöf Nor­dal sett­ist svo í stól inn­an­rík­is­ráð­herra var ákvörð­un­inni um lokun flug­braut­ar­innar snúið við. Reykja­vík­ur­borg höfð­aði þá mál við ríkið sem hæsti­réttur hefur dæmt í eins og áður seg­ir.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Isa­via er brautin ofboðs­lega lítið notuð á sumr­in. Hún sé í mun meiri notkun í skíta­veðrum og ákveðnum vind­áttum sem oftar ganga yfir Reykja­vík á vet­urn­ar. Þá er flug­brautin oft notuð sem flug­véla­stæði á sumr­in. Þar stendur til að mynda Dou­glas D3-­vél Icelanda­ir, oft­ast nefnd Þrist­ur­inn, við braut­ar­endan eins og er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None