David Cameron og Jeremy Corbyn.
David Cameron og Jeremy Corbyn.
Auglýsing

Fram­bjóð­endur til for­ystu í Íhalds­flokknum í Bret­landi þurfa að skila inn fram­boðum á fimmtu­dag­inn, og kjósa á nýjan for­mann flokks­ins fyrir 2. sept­em­ber næst­kom­andi. Þetta var ákveðið á fundi í morg­un. Flestir höfðu búist við mun lengri fresti og kosn­ingum síð­ar, eins og David Cameron for­sæt­is­ráð­herra og núver­andi for­maður flokks­ins hafði gefið til kynna. Hann sagð­ist vilja nýjan for­mann í októ­ber. 

Cameron til­kynnti sem kunn­ugt er að hann myndi hætta eftir að Bretar ákváðu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fyrir helgi að yfir­gefa Evr­ópu­sam­band­ið. 

Það er ekki bara í Íhalds­flokknum sem nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar breytir miklu, því Jer­emy Cor­byn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, er í miklum vand­ræðum með þinglið sitt og má segja að upp­lausn ríki í flokkn­um. 

Auglýsing

Vel á þriðja tug skugga­ráð­herra í Verka­manna­flokknum hafa hætt frá því í gær, þegar Cor­byn rak skuggaut­an­rík­is­ráð­herr­ann Hil­ary Benn. Benn hafði sagt Cor­byn að hann hefði misst trúna á honum sem leið­toga flokks­ins. Tólf skugga­ráð­herrar Cor­byns hættu störfum í gær og enn fleiri hafa hætt það sem af er degi. Cor­byn hefur neitað að hætta, en lík­legt þykir að hann muni fá á sig form­lega van­traust­s­til­lög­u. 

Pundið og hluta­bréf áfram á nið­ur­leið

George Osborne, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, reyndi í morgun að róa mark­aði sem opn­uðu á ný með miklum lækk­unum í kjöl­far nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar á fimmtu­dag­inn. Hann sagði Breta reiðu­búna að takast á við fram­tíð­ina á sterkum grund­velli en að auð­vitað þyrfti að aðlaga breska hag­kerfið að nýjum veru­leika. Hans hlut­verk sé að halda efna­hags­líf­inu stöð­ug­u. 

Óhætt er að segja að yfir­lýs­ing hans hafi ekki borið til­ætl­aðan árang­ur, þar sem breska pundið hefur haldið áfram að lækka og er nú lægra gagn­vart Banda­ríkja­dollar en það hefur verið í 31 ár. FTSE 100 vísi­talan hefur einnig lækkað um 1,3% það sem af er morgn­i. Við­skiptum með bréf í bönk­unum Barclays of Royal Bank of Scotland var hætt um tíma eftir að hluta­bréfa­verð í báðum bönk­unum hafði lækkað um meira en 10 pró­sent á skömmum tíma í morg­un. Hluta­bréf í flug­fé­lag­inu Easy Jet lækk­uðu um fimmt­ung. 

Engar óform­legar við­ræður við ESB  

Ang­ela Merkel, Þýska­landskansl­ari, tók af skarið í morgun og sagði að Evr­ópu­sam­bandið myndi ekki eiga í neinum við­ræðum við Breta um það sem koma skal fyrr en búið er að virkja 50. grein­ina í Lissa­bon-sátt­mál­an­um. 50. greinin kveður á um ferlið sem fer í gang þegar ríki ákveður að yfir­gefa sam­band­ið. David Cameron virkj­aði ákvæðið ekki strax á föstu­dag eftir að úrslitin voru ljós, og í morgun sagði Osborne fjár­mála­ráð­herra að ekki ætti að gera það fyrr en búið er að gera áætlun um það hverju á að sækj­ast eftir í sam­skiptum við Evr­ópu­sam­band­ið. 

Merkel og þýska rík­is­stjórnin sögðu í morgun að Bretar fengju sann­gjarnan frest til að hefja þessa veg­ferð form­lega, en það megi ekki ríkja stöðn­un. Leið­togar Þýska­lands, Frakk­lands og Ítalíu funda einnig í Berlín í dag um útgöngu Breta úr sam­band­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None