Lífeyrissjóðir fá að versla fyrir 40 milljarða utan hafta

epaselect-china-stock-market_18927884084_o.jpg
Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur veitt líf­eyr­is­sjóðum lands­ins og öðrum vörslu­að­ilum sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar und­an­þágu frá fjár­magns­höftun til að fjár­festa fyrir 40 millj­arða króna erlend­is. Heim­ildin gildir frá deg­inum í dag og til loka sept­em­ber, eða í þrjá mán­uði. Áður hafði Seðla­bank­inn heim­ilað sjóð­unum að fjár­festa fyrir sam­tals 40 millj­arða króna frá miðju ári í fyrra, en í þremur skref­um. Því eru þær til­slak­anir sem sjóð­unum voru veittar í dag þær lang­mestu sem Seðla­bank­inn hefur veitt þeim frá því að höft voru sett á hér­lendis í lok árs 2008. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands vegna þessa segir að gjald­eyr­is­inn­streymi það sem af er þessu ári, ásamt minni óvissu um þróun greiðslu­jafn­aðar í fram­haldi af aflandskróna­út­boði og nauða­samn­ingum slita­búa, hafi skapað svig­rúm til frek­ari fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða og ann­arra vörslu­að­ila sér­eign­ar­sparn­aðar í fjár­mála­gern­ingum útgefnum í erlendum gjald­eyri. „Eins og áður eru rökin fyrir und­an­þág­unni þau að þjóð­hags­legur ávinn­ingur fylgir því að gera líf­eyr­is­sjóð­unum kleift að bæta áhættu­dreif­ingu í eigna­söfnum og minnka upp­safn­aða erlenda fjár­fest­ing­ar­þörf þeirra þegar fjár­magns­höft verða losuð á inn­lenda aðila. Þar með er dregið úr hættu á óstöð­ug­leika í geng­is- og pen­inga­málum við losun fjár­magns­hafta. Til lengri tíma litið hafa þessar auknu heim­ildir sjóð­anna hverf­andi áhrif á gjald­eyr­is­stöð­una því gera má ráð fyrir að gjald­eyr­is­kaup líf­eyr­is­sjóð­anna á næstu mán­uðum muni draga úr þörf þeirra til gjald­eyr­is­kaupa í fram­tíð­inn­i.“

Fjár­fest­ing­ar­heim­ild­inni verður skipt á milli líf­eyr­is­sjóð­anna og ann­arra vörslu­að­ila með þeim hætti að ann­ars vegar verður horft til sam­tölu eigna, sem fær 86 pró­sent vægi, og hins vegar til iðgjalda að frá­dregnum líf­eyr­is­greiðsl­um, sem fær 14 pró­sent vægi. Útreikn­ing­ur­inn byggir á upp­lýs­ingum úr síð­ustu árs­reikn­inga­bók Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um líf­eyr­is­sjóði, þ.e. tölum frá árinu 2014. 

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um nýlegt aflandskrón­u­út­boð Seðla­bank­ans í frétta­skýr­ingu í lið­inni viku. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None