Mannréttindadómstóll Evrópu óskar svara um Al Thani málið frá ríkinu

sigurdur_og_olafur.jpg
Auglýsing

Mann­rétt­inda­dóm­stóll ­Evr­ópu hefur sent íslenskum stjórn­völdum bréf þar sem ­stjórn­völd eru krafin svara við spurn­ingum um Al-T­hani mál­ið. ­Sig­urður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Ólafur Ólafs­son og ­Magnús Guð­munds­son, sem fengu allir þunga dóma í mál­inu, kærð­u það til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins fyrir ári síð­an. Auk þess að kæra til dóm­stóls­ins fóru þeir allir fram á end­ur­upp­töku ­máls­ins hér á landi.

Í bréf­inu sem stjórn­völd hafa nú fengið kemur fram að um ­for­skoðun á umsókn fjór­menn­ing­anna sé að ræða. Þess er óskað að íslensk stjórn­völd svari fjórum spurn­ingum um málið fyr­ir­ 10. októ­ber næst­kom­andi.

Þau eru beðin um að svara til um hæfi Árna Kol­beins­son­ar, sem var einn þeirra sem dæmdi í mál­inu, og hvort brotið hafi verið gegn hlut­leysi með því að hann hafi dæmt í mál­inu.

Auglýsing

Stjórn­völd eru spurð hvort brotið hafi verið á rétti fjór­menn­ing­anna til­ þess að hljóta sann­gjarna með­ferð fyrir dómi með því að þeir hafi ekki fengið að leiða þá Al Thani og sheikh Sult­an ­fyrir rétt­inn.

Í ­þriðja lagi er spurt hvort brotið hafi verið á rétti þeirra til rétt­látrar máls­með­ferðar með til­liti til aðgangs þeirra að gögnum máls­ins, rétt til að and­mæla og hvort þeir hafi ­fengið nægan tíma til að und­ir­búa málsvörn sína.

Að lokum eru íslensk stjórn­völd spurð hvort frið­helgi einka­lífs þeirra hafi verið brotin þegar sím­töl við verj­endur vor­u hljóð­rituð og skoð­uð.

Al-T­han­i ­mál­ið, sem er eitt umfangs­­mesta efna­hags­brota­­mál ­sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-T­hani frá Katar hinn 22. sept­­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­­senta hlut í Kaup­­þingi banka fyr­ir­ 25,7 millj­­arða króna með láni frá bank­an­­um.

Árn­i Kol­beins­­son var skip­aður vara­­dóm­­ari í mál­inu að því er fram kemur þar. Mál­flytj­end­um hafi verið til­­kynnt í des­em­ber í fyrra að eig­in­­kona hans, Sig­ríður Thor­laci­us, hafi ­setið í stjórn Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins fram í jan­úar 2009. Fjár­­­mála­eft­ir­lit­ið var með Al Than­i-­­málið til rann­­sóknar á þeim ­tíma. Þá var óskað eftir því að mál­flytj­end­ur ­gerðu athuga­­semdir við setu Árna ef þeir hefðu þær, en svo var ekki gert.

Eft­ir að dómur var geng­inn sögðu fjór­menn­ing­arnir hins vegar að fram hafi komið upp­­lýs­ingar um að sonur Árna hefði starfað ­sem for­­stöð­u­­maður lög­­fræð­is­viðs slita­­stjórnar Kaup­­þings frá 2008 og 2013. Þetta hafi verið nýjar upp­­lýs­ingar sem ekki hafi verið upp­­lýst ­um. Hags­munir slita­­stjórnar Kaup­­þings af sak­­fell­ingu þeirra í mál­inu hafi ver­ið aug­­ljós­­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None