Mikill launamunur kynja í stjórnunarstöðum

kvennaframboð konur launamunur
Auglýsing

Karlar eru bæði miklu fleiri í stjórn­un­ar­stöðum og hafa mun hærri tekjur en kon­ur, sam­kvæmt úttekt Frjálsrar versl­un­ar, sem gaf í morgun út sitt árlega tekju­blað. 

Veru­legur munur er á launum karla og kvenna meðal for­stjóra, milli­stjórn­enda og starfs­manna í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Þetta stafar meðal ann­ars af því að miklu færri konur eru í stöðum æðstu stjórn­enda í stór­fyr­ir­tækj­u­m. 

Í úttekt Frjálsrar versl­unar, sem tekið skal fram að er ekki tæm­andi, kemur fram að laun 450 for­stjóra hafi verið skoð­uð. Þar af voru 376 karlar og 74 kon­ur. Kon­urnar höfðu að með­al­tali 1.423 þús­und krónur í laun á meðan karlar höfðu að með­al­tali 2.238 þús­und krónur á mán­uði. Það þýðir að kon­urnar höfðu að með­al­tali tæp­lega 64 pró­sent af með­al­launum karl­anna. 

Auglýsing

Hjá milli­stjórn­endum voru 600 í úrtak­inu, 417 karlar og 183 kon­ur. Kon­urnar höfðu að með­al­tali 1.320 þús­und krónur á mán­uði en karl­arnir 1.670 þús­und krón­ur. Það sam­svarar því að kon­urnar séu að með­al­tali með 79 pró­sent launa karl­anna. 

Í flokki starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja voru 340 í úrtak­inu, 85 konur og 255 karl­ar. Kon­urnar eru að með­al­tali með tæp­lega 72% af launum karl­anna, eða að með­al­tali 1.523 þús­und krónur í mán­að­ar­laun á meðan karl­arnir eru að með­al­tali með 2.116 þús­und krónur í laun. 

Ein kona fyrir hverja níu karla

Kjarn­inn hefur und­an­farin þrjú ár tekið saman upp­lýs­ingar um karla og konur í stjórn­un­ar­stöðum í efstu lögum íslenska fjár­mála­geirans. Á þessu ári er staðan þannig að fyrir hverja níu karla sem stýra pen­ingum á Íslandi er aðeins ein kona. Kjarn­inn skoð­aði stöðun hjá æðstu stjórn­endum við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á mark­að, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­anna, Kaup­hallar og íbúða­lána­sjóða. 

Störfin sem um ræðir eru 92 tals­ins. Í þeim sitja 85 karlar en sjö kon­ur. Því eru um 92 pró­sent allra þeirra sem stýra pen­ing­unum í íslensku sam­fé­lagi karl­ar. Og það hlut­fall hefur nán­ast ekk­ert breyst á und­an­förnum þremur árum.

Ein kona stýrir banka á Íslandi og ein spari­­­­­sjóði. Ein kona stýr­ir lána­­­fyr­ir­tæki, tvær líf­eyr­is­­­sjóð­um, ein Fram­taks­­­sjóð­i Ís­lands, og einu skráðu félagi á mark­aði er stýrt af kon­u. Þetta þýðir meðal ann­­­ars að engu verð­bréfa­­­fyr­ir­tæki er stýrt af konu og engu orku­­­fyr­ir­tæki eða óskráðu trygg­inga­­­fé­lagi. Sex ­konur eru stjórn­­­­­ar­­­for­­­menn í skráðum fyr­ir­tækjum og tíu karl­­­ar. Svo er for­­­stjóri Kaup­hall­­­ar­innar karl, það eru líka seðla­­­banka­­­stjóri, að­­­stoð­­­ar­­­seðla­­­banka­­­stjóri og aðal­­­hag­fræð­ingur Seðla­­­bank­ans. 

Þrátt fyrir að lög séu í gildi um að hlut­­­föll hvors kyns í stjórnum fyr­ir­tækja með fleiri en 50 starfs­­­menn væri að minnsta kosti 40 pró­­­sent er það langt frá því að vera til­­­­­fellið. Í annarri sam­an­­­tekt Kjarn­ans kom fram að af 982 stjórn­­­­­ar­­­mönnum í 270 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins væru 665 karlar og 317 kon­­­ur. Það þýðir 32% konur og 68% karl­­­ar. Dæmi­­­gerður stjórn­­­­­ar­­­maður í íslensku atvinn­u­­­lífi er karl­­­maður á sex­tugs­aldri. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None