Ekki mælist marktækur munur á fylgi Viðreisnar og Framsóknarflokks

Framsóknarflokkurinn stendur í stað í nýrri kosningaspá en Viðreisn sækir enn í sig veðrið. Ekki mælist marktækur munur milli fylgi flokkanna. Píratar eru enn stærstir og fylgi við Sjálfstæðisflokk minnkar enn.

Fylgi við Framsókn minnkaði hratt í kjölfar Wintris-málsins. Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkaði lítillega í einni könnun en flokkurinn náði vopnum sínum fljótt aftur. Framsóknarflokkur mælist nú ekki með meira en 10 prósenta fylgi.
Fylgi við Framsókn minnkaði hratt í kjölfar Wintris-málsins. Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkaði lítillega í einni könnun en flokkurinn náði vopnum sínum fljótt aftur. Framsóknarflokkur mælist nú ekki með meira en 10 prósenta fylgi.
Auglýsing

Við­reisn er nú með nán­ast jafn mikið fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og mælist með 9,5 pró­sent í nýrri kosn­inga­spá. Píratar mæl­ast enn með mestan stuðn­ing allra fram­boða sem hyggj­ast bjóða fram í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum í haust.

Fylgi við Við­reisn hefur auk­ist jafnt og þétt í síð­ustu kosn­inga­spám, sem Kjarn­inn og Baldur Héð­ins­son gera í sam­ein­ingu. Á sama tíma og Við­reisn bætir við sig virð­ist stuðn­ingur við önnur fram­boð minnka eða standa í stað. Sam­fylk­ingin bætir reyndar örlítið við sig en nær ekki jafn miklu fylgi og Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisn. Ekki er mark­tækur munur á fylgi Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlyti 23 pró­sent atkvæða ef gengið yrði að kjör­borð­inu nú, sam­kvæmt kosn­igna­spánni. Fylgi við flokk­inn hefur minnkað nokkuð í síð­ustu kosn­inga­spám og fallið úr nærri 30 pró­sent fylgi.

Á sama tíma virð­ist stuðn­ingur við Pírata hafa fundið jafn­vægi á ný í rúm­lega 28 pró­sent stuðn­ingi. Þegar best lét nutu Píratar fylgis meira en 35 pró­sent kjós­enda framan af ári en í Wintris-vik­unni svoköll­uðu í byrjun apríl byrj­aði stuðn­ingur við Pírata að falla.

Auglýsing

Vinstri græn eru enn þriðja stærsta fram­boðið sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Stuðn­ingur við flokk­inn mælist nú 16,1 pró­sent, örlítið minna en í síð­ustu kosn­inga­spá. Vinstri græn virð­ast einnig hafa fundið jafn­vægi í rúmum 16 pró­sentum eftir fylg­is­flakkið í byrjun apr­íl. Fram­sókn­ar­flokkur mælist með 10 pró­sent fylg­i.

Enn mælist Björt fram­tíð með minnst fylgi allra núver­andi flokka á Alþingi. Fram­boð þeirra mælist með aðeins 3,7 pró­sent stuðn­ing. Ætla má að flokkur þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til að ná kjöri. Erfitt er hins vegar að fjöl­yrða um slíkt því eitt fram­boð gæti verið að sækja meiri stuðn­ing í eitt kjör­dæmi umfram önn­ur. Enn er ekki farið að kanna stuðn­ing innan hvers kjör­dæmis fyrir sig.

Önnur fram­boð fá minna en eitt pró­sent stuðn­ing. Dögun mælist með 0,5 pró­sent og Alþýðu­fylk­ingin með 0,1 pró­sent. Önnur fram­boð fengju sam­tals 0,3 pró­sent. Stuðn­ingur við Dögun og Alþýðu­fylk­ing­una er innan vik­marka.

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 3. júlí og er byggð á þremur nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í Alþing­is­kosn­ingum sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Nýjasta könn­unin vegur lang þyngst í þetta sinn. Það útskýrist af stærð könn­un­ar­innar og lengd tíma­bils­ins sem hún er gerð á. Kann­an­irnar eru:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. maí til 29. júní (vægi 50,2%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 19. til 22. júní (vægi 30,6%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. til 12. júní (vægi 19,2%)

Hvað er Kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Kosn­­­­inga­­­­spálíkan Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­lýs­ing­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­inga­­­­spá Bald­­­­urs fyrir sveit­­­­ar­­­­stjórn­­­­­­­ar­­­­kosn­­­­ing­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­inga­­­­spá.is má lesa nið­­­­ur­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­leiki könn­un­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­inga­úr­slit­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None