Stjórmálaflokkurinn Dögun ætlar að bjóða fram í öllum kjördæmum

Dögun ætlar að bjóða fram til Alþingis í annað sinn í komandi kosningum. Flokkurinn hefur mælst með undir eitt prósenta fylgi. Formaðurinn vonast til þess að kosningar munu ekki snúast um skoðanakannanir eins og í forsetakosningum.

Helga Þórðardóttir, formaður Dögunar, segir málefni flokksins tilbúin en kjördæmaráð geti síðan lagt áherslu á sín málefni.
Helga Þórðardóttir, formaður Dögunar, segir málefni flokksins tilbúin en kjördæmaráð geti síðan lagt áherslu á sín málefni.
Auglýsing

Stjórn­mála­flokk­ur­inn Dögun ætlar að bjóða fram til Alþingis í öllum kjör­dæm­um. Kjör­dæm­is­ráð um land allt vinna nú að upp­still­ingum á lista. Helga Þórð­ar­dótt­ir, for­maður Dög­un­ar, segir mönnun lista hafa gengið vel. 

„Við erum ekki búin að fylla þá en erum með fullt af fólki. Enda erum við búin að vera starf­andi á fullu síðan í síð­ustu kosn­ingum þegar við vorum nýtt fram­boð,“ segir hún. 

Minnka völd fjár­mála­kerf­is­ins yfir lífi fólks

Dögun varð til fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2013 þegar flokks­menn úr Borg­ara­hreyf­ing­unni, Hreyf­ing­unni, Frjáls­lynda flokks­ins og fleirum tóku sig sam­an. Meðal flokks­manna 2013 voru Andrea J. Ólafs­dótt­ir, Gísli Tryggva­son og Mar­grét Tryggva­dótt­ir, þáver­andi for­mað­ur. Dögun náði engum manni inn á þing og hlaut 3,1 pró­sent atkvæða 2013.

Auglýsing

Helga segir flokk­inn kom­inn með öll mál­efnin og lögð verði áhersla á til­tek­inn verk­efna­lista fyrir kom­andi kosn­ing­ar. Meðal mál­efna eru afnám verð­trygg­ing­ar, stofnun sam­fé­lags­banka, sam­einað líf­eyr­is­kerfi, hækkun grunn­fram­færslu, þjóð­ar­eign á auð­lindum og ný stjórn­ar­skrá. 

„Þetta er verk­efna­list­inn sem við ætlum að nota til að laga Ísland og minnka völd fjár­mála­kerf­is­ins yfir lífi okk­ar,“ segir Helga. „Þetta er það sem sam­einar okkur en svo er hvert kjör­dæma­ráð með sínar áherslur eins og geng­ur.“

0,5 pró­senta fylgi

Dögun hefur ekki mælst vel í skoð­ana­könn­unum und­an­farin miss­eri. Í nýj­ustu Kosn­inga­spá Kjarn­ans var fylgið 0,5 pró­sent. Helga segir flokk­inn ein­fald­lega ekki hafa fengið að vera með í skoð­ana­könn­un­um. „En við vonum að þessar kosn­ingar fari ekki að snú­ast um að velta sér upp úr skoð­ana­könn­un­um, eins og gerð­ist í for­seta­kosn­ing­un­um,“ segir Helga. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None