Seðlabankastjóri: Engum greiði gerður með því að lækka vexti núna

Í Þjóðhagsráði sitja forsætisráðherra, sem stýrir fundum ráðsins, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands. Allir sem þar sitja eru karlmenn.
Í Þjóðhagsráði sitja forsætisráðherra, sem stýrir fundum ráðsins, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands. Allir sem þar sitja eru karlmenn.
Auglýsing

Á fyrsta fundi Þjóð­hags­ráðs, sem hald­inn var fyrir mán­uði síð­an, sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri að engum væri greiði gerður með því að vextir á Íslandi yrðu lækk­aðir án þess að inn­stæða væri fyrir því. Hægt væri að lækka vexti hér­lendis ef verð­bólgu­vænt­ingar væru í takti við verð­bólgu­mark­mið, en svo er ekki sem stend­ur. Því þurfi að sýna þol­in­mæði. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð vegna fyrsta fundar Þjóð­hags­ráðs, sem gerð var opin­ber í dag. 

Stýri­vextir á Íslandi eru 5,75 pró­sent. Í flestum löndum sem Ísland miðar sig við eru þeir í kringum núll. Í maí greindi Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands frá því að líkur séu á að vextir hækki þegar líður á árið vegna vænt­inga um aukna verð­bólg­u. 

Ræddu um hvenær vextir gætu lækkað

Í fund­ar­gerð Þjóð­hags­ráðs segir að á fundi ráðs­ins hafi verið rætt um við hvaða aðstæður vextir gætu lækkað hér­lendis og nefnt var að bit vaxta­tæk­is­ins væri minna en af væri látið vegna verð­trygg­ing­ar. Már sagði að vextir hér á landi gætu lækkað ef verð­bólgu­vænt­ingar væru í takti við verð­bólgu­mark­mið „eins og í flestum iðn­ríkjum og ef vinnu­mark­aður og rík­is­fjár­mál styddu pen­inga­stefn­una. Það breytti því þó ekki að hér væru tölu­vert aðrar aðstæður en ann­ars stað­ar; hag­vöxtur væri kröft­ug­ur, spenna hefði mynd­ast í þjóð­ar­bú­skapnum og full atvinna hefði náðst. Taldi hann nauð­syn­legt að sýna þol­in­mæði, margt gengi mjög vel og mik­il­vægar breyt­ingar væru að koma til fram­kvæmda. Engum væri greiði gerður með því að lækka vexti án þess að inn­stæða væri fyrir því."

Auglýsing

Var­aði við auknum vaxta­muna­við­skiptum

Á fund­inum sagði Már einnig að áskor­anir sem pen­inga­stefnan á Íslandi stæði frammi fyrir væru miklar og að losun fjár­magns­hafta væri ein þeirra og vextir væru líka mun hærri hér en víðar hvar ann­ars stað­ar. Már sagði að vaxta­mun­ur­inn á milli Íslands og ann­arra landa „skapa hættu á fjár­magnsinn­streymi á grund­velli svo­kall­aðra vaxta­mun­ar­við­skipta, en slíkt inmn­streymi hefði truflað miðlum pen­inga­stefn­unnar í gegnum vexti á seinni helm­ingi síð­asta árs“. Már bætti þó við að nýtt fjár­streym­is­tæki, sem Seðla­bank­inn kynnti til leiks í byrjun júní­mán­að­ar, ætti að geta haft „áhrif á sam­setn­ingu fjár­magns­flæðis til og frá land­inu og þannig væri betur hægt að beita vöxt­unum til að dempa eft­ir­spurn ef á þyrfti að halda“.

Á árunum fyrir hrun flæddu erlendir pen­ingar inn í íslenska hag­­kerfið í svoköll­uðum vaxta­muna­við­­skipt­­um. Í ein­­földu máli snú­­ast þau um að er­­lendir fjár­­­festar tóku lán í myntum þar sem vextir voru lágir og keyptu síð­­an ­ís­­lensk skulda­bréf, vegna þess að vextir á þeim eru háir í öllum alþjóð­­leg­um ­sam­an­­burði. Því gátu fjár­­­fest­­arnir hagn­­ast vel umfram þann kostnað sem þeir báru af lán­­töku sinn­­ar. Og ef þeir voru að gera við­­skipti með eigin fé þá gát­u þeir auð­vitað hagn­­ast enn meira.

Þessi vaxta­muna­við­­skipti áttu stóran þátt í að blása upp þá ­bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leit­aði í íslenska skulda­bréfa­­flokka var end­­ur­lánað til við­­skipta­vina íslensku bank­anna og við það ­stækk­­aði umfang þeirra gríð­­ar­­lega. Við hrun, þegar setja þurfti fjár­­­magns­höft á til að hindra útflæði gjald­eyr­is, voru vaxta­muna­fjár­­­fest­ingar vel á sjö­unda hund­rað millj­­arða króna.

Vextir Seðla­­banka Íslands lækk­­uðu skarpt fyrstu árin eft­ir hrun. Und­an­farin mis­s­eri hafa þeir hins vegar hækk­­að, enda vaxta­hækk­­­anir hel­sta ­stýri­tæki bank­ans til að halda aftur að verð­­bólgu. Stýri­vextir á Íslandi eru nú t.d. 5,75 pró­­sent á sama tima og þeir eru mjög nálægt núll­inu i mörgum öðrum lönd­­um. Þessar vaxta­hækk­­­anir hafa gert Ísland eft­ir­­sókn­­ar­verð­­ara sem fjár­­­fest­inga­­kost. Kynn­ing á áætlun stjórn­­­valda um losun hafta, sem fyr­ir­hugað er að muni eiga sér­ ­stað á þessu ári, gerði einnig mikið til að auka áhuga erlendra fjár­­­festa á því að ávaxta fé sitt á Íslandi. Losun hafta myndi enda þýða að þeir væru frjáls­ir til að flytja fé sitt aftur heim þegar skulda­bréfa­­flokk­­arnir sem þeir fjár­­­fest­u í væru á gjald­daga.

Þegar byrjað

Ljóst var að vaxta­muna­við­skipti hófust að nýju á Íslandi á fullu á síð­asta ári. Þá keyptu  er­lendir aðilar eignir á Íslandi fyrir 76,1 millj­­arð króna í fyrra. Langstærstur hluti fjár­­­fest­ingar þeirra var í íslenskum ­rík­­is­skulda­bréf­um, alls um 54 millj­­arðar króna. Þeir keyptu auk þess hluta­bréf ­fyrir 5,7 millj­­arða króna, fast­­eignir fyrir 652 millj­­ónir króna og fjár­­­festu í at­vinn­u­­rekstri fyrir um þrettán millj­­arða króna. „Aðrar fjár­­­fest­ingar erlendra að­ila“ námu síðan um 1,1 millj­­arði króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None