Biskup: Ekki vandamál að Guðni sé utan trúfélaga

Biskup Íslands telur það ekki vandamál að næsti forseti sé ekki skráður í þjóðkirkjuna. Hún er þó enn á þeirri skoðun að það sé óeðlilegt að forseti Íslands standi utan kirkjunnar. Biskup hefur fundað með Guðna.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er enn þeirrar skoðunar að það sé óeðlilegt að hafa forseta sem standi utan þjóðkirkjunnar, en hún telur það ekki verða vandamál.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er enn þeirrar skoðunar að það sé óeðlilegt að hafa forseta sem standi utan þjóðkirkjunnar, en hún telur það ekki verða vandamál.
Auglýsing

Biskup Íslands, Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, telur það ekki vanda­mál að næsti for­seti Íslands verði utan þjóð­kirkj­unn­ar. Í sam­tali við Kjarn­ann segir hún að þau Guðni Th. Jóhann­es­son hafi rætt saman og hvor­ugt þeirra telji að það eigi eftir að há þeim að hann standi utan trú­fé­laga. Guðni skráði sig úr kaþ­ólsku kirkj­unni árið 2013 í kjöl­far þess að kirkjan hylmdi yfir kyn­ferð­is­brot innan henn­ar. Guðni verður fyrsti for­seti lýð­veld­is­ins sem er ekki skráður í þjóð­kirkj­una.

Agnes sagði í Kjarn­anum í jan­úar að hún teldi óeðli­legt ef næsti for­seti væri utan kirkj­unn­ar. Nú, hálfu ári seinna, seg­ist hún ekki vera búin að skipta um skoð­un, þó að þetta sé ekki atriði til þess að gera ágrein­ing út af. 

„Það er ríkir trú­frelsi hér á landi og hver og einn ræður því hvar hann eða hún er skráð­ur,“ segir Agn­es. „Þjóðin hefur nú kosið nýjan for­seta og þetta er nið­ur­stað­an.“

Auglýsing

Hitt­ust fyrir til­viljun á guðs­þjón­ustu

Eins og áður segir hafa Agnes og Guðni átt fund saman en þau hitt­ust fyrir til­viljun í Dóm­kirkj­unni aftur í fyrra­dag við guðs­þjón­ustu.

„Þetta er ekki vanda­mál heldur stað­reynd,“ segir Agn­es. „Svona er þetta og ég sé engin merki þess að sam­leið okkar emb­ætta geti ekki orðið far­sæl.“ 

Guðni sagði í sam­tali við Kjarn­ann í maí, þegar hann var í kosn­inga­bar­áttu, að það yrðu engin vand­ræði fyrir hann að sinna skyldum sem lúti að kirkj­unn­i. 

„Nái ég kjöri, verður mér bæði ljúft og skylt að ganga við hlið bisk­­ups við setn­ingu Alþingis og hlýða á predikun míns góða vinar Sveins Val­­geir­s­­sonar dóm­­kirkju­­prests,” sagði Guðni. „Ég er langt frá því að vera trú­­laus og kristin gildi eru und­ir­­staða okkar lýð­ræðis og vel­­ferð­­ar­­sam­­fé­lags­.“ 

Agnes seg­ist óska Guðna til ham­ingju með að hafa náð kjöri. 

„Auð­vitað væntum við mik­ils af honum eins og allra í þessu emb­ætti. Ég bið honum bless­unar í hans störf­um.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None