Tengsl efnahagsástands og hjartaáfalla rannsökuð

Líklegt er að aukið vinnuframboð til skamms tíma eykur líkur á hjartaáfalli hjá karlmönnum. Þetta eru niðurstöður íslenskrar rannsóknar á tengslum hjartaáfalla og vinnuálags. Skattlausa árið 1987 var skoðað sérstaklega.

Aukið vinnuframboð til skamms tíma getur valdið meiri streitu meðal karlmanna og þar með hjartaáföllum.
Aukið vinnuframboð til skamms tíma getur valdið meiri streitu meðal karlmanna og þar með hjartaáföllum.
Auglýsing

Líkur á hjarta­á­falli hjá íslenskum karl­mönnum á aldr­inum 45 til 54 ára juk­ust meira en hjá karl­mönnum á aldr­inum 55 til 64 á skatt­lausa árinu 1987 á Íslandi. Þetta sýnir ný rann­sókn fræði­manna við Háskóla Íslands. Rann­sóknin birt­ist nýverið í Journal of Health Economics, virtasta vís­inda­tíma­riti heims á sviði heilsu­hag­fræð­i. 

Mark­mið rann­sókn­ar­innar var að kanna hvort aðstæður í efna­hags­lífi hefðu áhrif á líkur á hjarta­á­föllum og hvort skýr­inga væri að leita í tíma­bund­inni aukn­ingu á vinnu­fram­boði, er fram kemur í til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands. 

Skatt­lausa árið skoðað

Í rann­sókn­inni var sjónum beint sér­stak­lega að árinu 1987, þegar skatt­kerfi Íslands tók breyt­ingum og ákveðið var að breyta kerf­inu yfir í stað­greiðslu­skatt­kerfi og afnema tekju­skatt fyrir árið 1987. Það gerði það að verkum að vinnu­fram­boð jókst og næga vinnu var að fá fyrir þá sem vildu vinna mik­ið. Því var kannað var hvort þessi tíma­bundna aukn­ing á vinnu­fram­boði hefði áhrif á tíðni hjarta­á­falla. 

Auglýsing

Nið­ur­stöður gefa til kynna að skýr­inga á auknum líkum á hjarta­á­föllum meðal karla á skatt­lausa árinu 1987 og ári síðar sé að leita í skamm­tíma aukn­ingu vinnu­fram­boðs meðal þeirra sem voru sjálf­stætt starf­andi. Þeir sem voru sjálf­stætt starf­andi juku meira við sig í vinnu en aðrir og sú staða á vinnu­mark­aði virð­ist skýra þá aukn­ingu hjarta­á­falla sem varð hjá körlum á skatt­lausa árinu. Mögu­leg skýr­ing á þessu er að yngri menn­irnir reynd­ust auka meira við sig í vinnu en eldri karl­arnir sem virð­ist jafn­framt vega upp á móti ald­urstengdri áhættu hjarta­á­falla.

Skatt­skrár bornar saman við hjarta­á­falla­skrár

Skatt­skrár voru bornar saman við skrár yfir hjarta­á­föll á Íslandi hjá fólki á aldr­inum 45 til 74 ára, á tíma­bil­inu 1982 til 1992. Í ljós kom að 24 pró­senta aukn­ing frá með­al­tals­líkum á hjarta­á­föllum yfir rann­sókn­ar­tíma­bilið varð árið 1987 hjá körlum 45-64 ára og 15,6 pró­senta aukn­ingu árið 1988. 

„Það að vera við góða heilsu – og geta með góðu móti fórnað frí­tíma fyrir vinnu­tíma í afmark­aðan tíma – er hins vegar óháð því hvort ein­stak­ling­ur­inn er með ógreindan kransæða­sjúk­dóm. Þetta vekur því spurnignar um það hvort þeir sem yngri voru hafi síður vitað hvort þeir til­heyrðu áhættu­hópi þegar kemur að hjarta­á­föll­um. Ef til vill hafa þeir í minna mæli leitað læknis eða sinnt heilsu­eft­ir­liti en þeir sem til­heyra eldri ald­urs­hópn­um,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Höf­undar grein­ar­innar eru Þór­hildur Ólafs­dótt­ir, dokt­or­snemi við Hag­fræði­deild, Tinna Laufey Ásgeirs­dótt­ir, pró­fessor við Hag­fræði­deild, Birgir Hrafn­kels­son, pró­fessor við Raun­vís­inda­deild, og Guð­mundur Þor­geirs­son, pró­fessor við Lækna­deild. Rann­sóknin er hluti af dokt­ors­rann­sókn Þór­hildar í heilsu­hag­fræði sem ber heitið „Áhrif skyndi­legra breyt­inga í hag­kerfi á heilsu og heilsu­tengda hegð­un“. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None