Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu eykur tekjur ríkisins um milljarða

manudagur-i-juni-a-laugavegi_14496335195_o.jpg
Auglýsing

Velta í virð­is­auka­skyldri starf­semi hefur auk­ist um 272 millj­arða króna á síð­ustu tólf mán­uð­um. Frá byrjun maí til apr­íll­oka 2014-2015 var hún 3.615 millj­arðar króna en á sama tím­an­bili 2015-2016 var veltan orðin 3.887 millj­arðar króna. Frá þessu er greint í nýjum tölum Hag­stofu Íslands. Ljóst er að auknar tekjur rík­is­ins vegna þessa hlaupa á tugum millj­arða króna.

Tvær meg­in­á­stæður eru fyrir aukn­ing­unni. Í fyrsta lagi tóku breyt­ingar á lögum um virð­is­auka­skatt gildi um síð­ustu ára­mót og nokkrar atvinnu­greinar sem áður voru und­an­þegnar virð­is­auka­skatti gerðar skatt­skyld­ar. Þar ber helst að nefna far­þega­flutn­inga aðra en áætl­un­ar­flutn­inga og þjón­usta ferða­skrif­stofa. Í öðru lagi hafa umsvif þess­ara atvinnu­greina auk­ist mikið und­an­farin ár.

Skatt­þrepin i virð­is­auka­skatti eru tvö, ell­efu pró­sent og 24 pró­sent. Ferða­þjón­ustan dreif­ist á bæði skatt­þrepin eftir eðli. Útleiga á hót­el- og gisti­her­bergjum og fólks­flutn­ingar er þannig í lægra skatt­þrep­inu og það er sala veit­inga­húsa á til­reiddum mat líka, þar með talin sala áfengis og áfengra drykkja. Velta vegna fólks­flutn­inga á milli landa eru hins vegar und­an­þegin virð­is­auka­skatti en þóknun ferða­skrif­stofa, ferða­skipu­leggj­enda og ferða­fé­laga fellur undir hærra skatt­þrep­ið.

Auglýsing

Virð­is­auka­skatt­skyld velta í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri jókst um 23 pró­sent á milli ára, í flokknum sem far­þega­flutn­ingar heyra undir jókst veltan um 17 pró­sent og í flokknum sem þjón­usta ferða­skrif­stofa heyrir undir jókst hún um 39 pró­sent.

Fjöldi ferða­manna sem heim­sækir Ísland ár hvert hefur auk­ist gríð­ar­lega hratt á und­an­förnum árum. Árið 2010 var heild­ar­fjöldi erlendra gesta 489 þús­und en í fyrra var hann 1.289 þús­und. Spár gera ráð fyrir að fjölgun þeirra haldi áfram og að þeir verði rúm­lega 1,6 millj­ónir í ár. Verði það raunin liggur fyrir að fjöldi ferða­manna sem heim­sækir Ísland hafi rúm­lega þre­fald­ast á sjö árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None