Merkel vill skýra Brexit-áætlun frá Theresu May snarlega

Theresa May verður forsætisráðherra Bretlands á morgun. Leiðtogar Evrópuríkja bíða enn eftir að Bretland óski formlega eftir úrsögn úr ESB. Engar áætlanir um úrsögn hafa enn komið frá breskum stjórnvöldum.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, vill að Bretar úrskýri fljótt hvernig þeir hyggjast ætla að hætta í Evrópusambandinu.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, vill að Bretar úrskýri fljótt hvernig þeir hyggjast ætla að hætta í Evrópusambandinu.
Auglýsing

Ang­ela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hvatti bresk stjórn­völd til að útskýra snar­lega hvernig þau hyggj­ast móta fram­tíð sína með Evr­ópu­sam­band­inu. Rúm­lega helm­ingur bresku þjóð­ar­innar kaus úrsögn úr sam­band­inu í Brex­it-­þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í síð­asta mán­uði. Ther­esa May hefur verið valin af Íhalds­flokk­inum til að taka við af David Cameron sem for­sæt­is­ráð­herra lands­ins á morg­un.

„Brexit þýðir Brex­it,“ sagði May við fjöl­miðla fyrir framan þing­húsið í London þegar hún flutti sig­ur­ræðu sína þegar ljóst var að hún yrði næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins. „Við ætlum ekki að reyna nein brögð til að halda áfram í Evr­ópu­sam­band­inu, tryggjum engar vara­leiðir um bak­dyr og það verður engin önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla.“

Merkel sagði stuðn­ings­mönnum sínum í Þýska­landi í gær að Bretar myndu ekki fá að týna til það sem þeim þætti gott við ESB og halda aðgengi sínu að því. „Þetta verða erf­iðar við­ræður við Bret­land,“ sagði hún.

Auglýsing

„Evr­ópu­ríkin 27 sem eftir standa þurfa að vernda sína hags­mun­i,“ sagði Merkel í morg­un. Hún bætti við að vilji Bret­land halda aðgengi sínu að frjálsa mark­að­inum þurfi Bretar að gang­ast við grunn­skil­yrðum sam­bands­ins, hinu svo­kall­aða fjór­frelsi, og að það verði Bretum ómögu­legt að hafa frjálsa fólks­flutn­inga fyrir utan sviga.

Aðgengi að frjálsa mark­að­inum er bresku efna­hags­lífi mik­il­vægt. Breskir stjórn­mála­menn sem studdu úrsögn í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni lögðu á það áherslu að Bretar gætu gert samn­ing við ESB þar sem landið hefði enn aðgengi að frjálsa mark­að­inum en gæti tak­markað fjölda þeirra sem vilja flytja til Bret­lands og starfa þar.

Chris Grayl­ing, leið­togi í neðri deild breska þings­ins og stuðn­ings­maður Ther­esu May, lét hafa eftir sér að Bretum lægi ekk­ert á að skilja við Evr­ópu­sam­band­ið. Í Lisa­bon-sátt­mál­anum fjallar grein 50 um hvernig aðild­ar­ríki geta hætt í ESB og má það ferli ekki taka lengri tíma en tvö ár. Bresk stjórn­völd þurfa hins vegar að óska eftir úrsögn áður en klukkan fer að tifa og það hafa þau ekki enn gert. Þess er vænst að May taki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra á morg­un, mið­viku­dag.

Grayl­ing sagð Sky News-frétta­stof­unni að úrsögn yrði ekki óskað fyrr en Bret­land væri til­búið til þess. „Við virkjum ekki 50. grein­ina fyrr en við erum til­bú­in. Það mik­il­væg­asta sem við gerum núna verður að vera í þjóð­ar­hag,“ sagði hann og dró um leið úr vænt­ingum Evr­ópu­sam­bands­ins um að með May í for­sæti yrði óviss­unni eytt snar­lega.

Evr­ópu­sam­bandið er einnig að safna vopnum sínum fyrir við­ræð­urnar framund­an. Allt lítur út fyrir að ESB ætli að nota Skotland sem lóð á sínar voga­skálar, enda kusu Skotar með áfram­hald­andi veru í sam­band­inu. Nicola Stur­ge­on, fyrsti ráð­herra Skotlands, sagði það strax eftir að nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar voru ljósar að mjög lík­lega myndi Skotland krefj­ast ann­arar atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði frá Bret­landi. Hún hefur svo flogið til Brus­sel og rætt við evr­ópska stjórn­mála­menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None