Sigríður Björk braut meðalhófsreglu stjórnsýslulaga

sigríður björk guðjónsdóttir
Auglýsing

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu braut með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu­laga með því að víkja lög­reglu­manni úr starfi tíma­bundið í vet­ur. Henni var ekki heim­ilt að víkja honum frá störf­um. RÚV greindi frá þessu í dag og vísar í úrskurð inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur neitað að láta úrskurð­inn af hendi til Kjarn­ans þar sem hann snertir per­sónu­bundin mál sem séu einka­mál­efni ein­stak­linga. 

Sig­ríður Björk vék fyrr­ver­andi lög­reglu­manni í fíkni­efna­deild tíma­bundið frá störfum í jan­úar eftir að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hóf rann­sókn á meintum brotum hans í starfi. Hann var sak­aður um óeðli­leg sam­skipti við menn sem höfðu verið til rann­sóknar hjá deild­inni, en áður hafði hann verið færður tví­vegis til í starfi vegna meintra brota. Hér­aðs­sak­sókn­ari hreins­aði lög­reglu­mann­inn af öllum ásök­unum og honum var boðið að snúa aftur til starfa í tækni­deild lög­regl­unn­ar. 

Auglýsing

Ákvörð­unin um að víkja honum úr starfi var kærð til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Sam­kvæmt RÚV gagn­rýnir ráðu­neytið að ákvörðun Sig­ríðar hafi fyrst og fremst byggt á frá­sögnum og orðrómi en ekki gögn­um. Hún hafi ekki gætt með­al­hófs­sjón­ar­miða, sam­kvæmt 12. grein stjórn­sýslu­laga. Ákvörðun um að leysa fólk úr emb­ætti tíma­bundið sé veru­lega íþyngj­andi fyrir þann sem hún bein­ist að og vanda eigi til und­ir­bún­ings og með­ferðar mála áður en slík ákvörðun sé tek­in. 

Braut per­sónu­vernd­ar­lög 

Þegar Sig­ríður Björk var lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum braut hún lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos. Upp­lýs­ing­arnar voru í for­grunni leka­máls­ins svo­kall­aða, en Gísli Freyr var svo dæmdur í fang­elsi fyrir að leka upp­lýs­ingum um Omos í fjöl­miðla. 

Miðlun Lög­­regl­unnar á Suð­­ur­­nesjum á skýrslu­drögum með per­­són­u­­upp­­lýs­ingum um Tony Omos, Evelyn Glory Jos­eph og fleiri ein­stak­l­inga til inn­­an­­rík­­is­ráðu­­neyt­is­ins hinn 20. nóv­­em­ber 2013, sem og beiðni ráðu­­neyt­is­ins þar að lút­­andi, studd­ist ekki við við­hlít­andi heim­ild, að því er fram kom í úrskurði Per­sónu­vernd­ar. Sig­ríður Björk neit­aði því hins vegar að hafa brotið lög. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None