Landsbankinn ekki höfðað mál vegna sölunnar á Borgun

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Lands­bank­inn hefur enn ekki höfðað mál vegna söl­unnar á eign­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, greindi frá því í Kast­ljósi um miðjan febr­úar að Lands­bank­inn væri að kanna hvort kæra ætti stjórn­endur Borg­unar vegna máls­ins. Bank­inn sendi síðan frá sér til­kynn­ingu 16. mars um að hann hefði falið lög­mönnum sínum að und­ir­­búa mál­­sókn „til þess að end­­ur­heimta þá fjár­­muni sem bank­inn fór á mis við í við­­skipt­un­­um.“ Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá bank­anum á þeim tíma hafði athugun innan hans gefið til kynna að til­­efni sé til þess að und­ir­­búa mál­­sókn og vinna við und­ir­bún­ing hennar staðið yfir um nokk­­urt skeið.

Kjarn­inn spurð­ist fyrir um hver staðan á umræddri mál­sókn væri og fékk þær upp­lýs­ingar hjá Lands­bank­anum að ekk­ert nýtt hefði gerst í mál­inu.

Borgun búið að fá greitt vegna sölu Visa Europe

Eins og Kjarn­inn hefur ítrekað fjallað um var 31,2 pró­­senta hlutur í Borgun seldur bak við luktar dyr til val­inna fjár­­­festa, meðal ann­­ars stjórn­­enda Borg­un­­ar, undir lok árs­ins 2014. Hlut­­ur­inn var seldur á 2,2 millj­­arða króna og heild­­ar­virði félags­­ins var metið á um sjö millj­­arða. Í febr­­úar var virði fyr­ir­tæk­is­ins talið allt að 26 millj­­arðar króna. Eftir á hefur komið í ljós að Borgun ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe ef hann yrði virkj­að­­ur. Lands­­bank­inn hefur sagt að hann hafi ekki verið upp­­lýstur um þennan val­rétt. Því hefur Borgun hins vegar vísað á bug.

Auglýsing

Í gær greindi DV frá því að greiðslur vegna val­rétt­ar­ins hefðu borist íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum Borgun og Valitor um síð­ustu mán­að­ar­mót. Þar kom fram að greiðsl­urn­ar, sem fóru fram í reiðu­fé, hefðu verið hærri en upp­haf­leg stóð til þar sem fallið hafði verið frá afkomu­tengdri greiðslu sem taka átti mið af afkomu Visa Europe næstu fjögur árin. Upp­haf­lega átti reiðu­fé­s-greiðslan til Borg­unar að vera 4,6 millj­arðar króna, en nú er ljóst að hún var hærri.

Stjórn­endur Borg­unar hafa ætið vísað ásök­unum á hendur sér á bug og í febr­úar sögðu þeir að „al­var­­legar ásak­­anir banka­­stjór­ans um meint lög­­brot ann­­arra í þessu máli má sjálf­­sagt skoða í ljósi þeirrar erf­iðu stöðu sem Lands­­bank­inn er kom­inn í. Stjórn­­endur Borg­unar frá­­biðja sér með öllu að vera gerðir að blóra­­bögglum í þessu máli.“

Borgun hefur greitt eig­endum sínum þrjá millj­­­arða í arð ­fyrir rekstr­­­ar­árin 2014 og 2015. Á aðal­­­fundi Borgun fyrr á þessu ári var ákveðið að greiða 2,2 millj­­­arða í arð til hlut­hafa, vegna árs­ins 2015. Áður en kom til arð­greiðsl­unnar í fyrra, hafði ekki verið greidd­ur arður úr félag­inu frá árinu 2007.

Höfn­uðu rökum Lands­bank­ans

Banka­­­sýsla rík­­­is­ins, sem fer með eig­enda­­vald rík­­is­ins í fjár­­­mála­­fyr­ir­tækj­um, birti í mars ítar­­­legt bréf sem það sendi banka­ráði Lands­­­bank­ans vegna Borg­un­­­ar­­­máls­ins. Þar hafn­aði hún nær öllum rök­­­semd­­­ar­­­færslum sem Lands­­­bank­inn hefur teflt fram sér til varnar í mál­inu. Þar var enn frem­ur ­sagt að svör Lands­­­bank­ans við þeirri gagn­rýni sem sett hefur verið fram á fram­­­göngu hans hafi „ekki verið sann­­­fær­and­i“.

Borg­un­­ar­­málið leiddi til þess að fimm af sjö banka­ráðs­­­mönnum í Lands­­­bank­­­anum gáfu ekki kost á sér til end­­­ur­­­kjörs á aðal­­­fundi bank­ans, sem hald­inn var 14. apr­íl. Á meðal þeirra var Tryggvi Páls­­­son, for­­­maður banka­ráðs­ins. Stein­þór Páls­­­son, banka­­­stjóri Lands­­­bank­ans, neit­aði hins vegar hætta störf­um, en í yfir­­lýs­ingu frá banka­ráðs­­mönn­unum fimm var full­yrt að Banka­­sýsla rík­­is­ins hafi farið fram á afsögn Stein­þór­s. Banka­­­sýslan hafn­aði því síðar að upp­­­­­sögn Stein­þórs hafi verið til skoð­unar hjá henni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None