Þriggja mánaða neyðarástandi lýst yfir í Tyrklandi

Tyrklandsforseti lýsti í gærkvöld yfir neyðarástandi í landinu. Það á að vara í þrjá mánuði og segir forsetinn reglur lýðræðis virtar á meðan. Yfir 50.000 manns hafa verið handteknir eða reknir úr störfum.

Tayyip Erdogan
Auglýsing

Recep Tayyip Er­dogan Tyrk­lands­for­seti lýsti í gær­kvöldi yfir þriggja mán­aða neyð­ar­á­standi í land­inu. Hann til­kynnti þetta eftir að hafa hitt yfir­menn örygg­is­mála og ráða­menn í Ankara, höf­uð­borg Tyrk­lands, í gær. Hreins­unum er haldið áfram í land­inu eftir valda­ránstil­raun­ina á föstu­dag.  

Erdogan til­kynnti um neyð­ar­á­standið í sjón­varps­við­tali í gær­kvöld við arab­ísku sjón­varps­stöð­ina Al-Jazeera. Þessar breyt­ingar auð­velda for­set­anum að leita uppi alla þá sem hann grunar um að hafa tekið þátt í valda­ránstil­raun­inni. Erdogan und­ir­strik­aði þó í við­tal­inu að reglur lýð­ræð­is­ins yrðu enn virt­ar. 

Guar­dian greinir frá því að sam­kvæmt 121. grein stjórn­ar­skrár Tyrk­lands er neyð­ar­á­standi lýst. Þingið þarf að sam­þykkja beiðn­ina og það má ekki vara lengur en í hálft ár. Það veitir ráða­mönn­um, undir boð­valdi for­set­ans, vald til að koma á lögum sem eru sniðin að ástand­in­u. 

Auglýsing

Mats­fyr­ir­tækið Stand­ard and Poor's lækk­aði í gær láns­hæf­is­ein­kunn tyrk­neska rík­is­ins. Matið lækkar úr BB plús í BB með nei­kvæðum horfum og færir matið þar með í átt að rusl­flokki. Þá lok­uðu tyrk­nesk stjórn­völd á aðgang að síðu Wiki­leaks í gær, nokkrum klukku­stundum eftir að  sam­tökin láku um 300.000 tölvu­póstum frá Rétt­læt­is- og upp­bygg­ing­ar­flokkn­um, AKP, sem er í meiri­hluta á þing­in­u. Yfir 50.000 manns hafa verið hand­teknir eða reknir úr störfum í Tyrk­landi síðan á föstu­dag. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None