Alvarlegt mál þegar kjarabarátta fer í að tala niður öryggi

ISAVIA þvertekur fyrir að flugöryggi á Íslandi sé ógnað. Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra lýstu yfir áhyggjum af öryggismálum vegna manneklu í stéttinni. ISAVIA segir alvarlegt þegar kjarabarátta fari í að tala niður öryggi.

Schönefeld - flugvöllur
Auglýsing

Isa­via full­yrðir að öryggi við flug­um­ferð­ar­stjórn á Íslandi sé ekki ógn­að. Það segir fyr­ir­tækið að til­efni yfir­lýs­ingar Alþjóða­sam­taka flug­um­ferð­ar­stjóra, IFATCA, um miklar áhyggjur af flug­ör­yggi hér á landi vegna mann­eklu í stétt­inni. Eins og kunn­ugt er hafa flug­um­ferð­ar­stjórar verið í mik­illi kjara­bar­áttu und­an­farið sem hefur orðið til tölu­verðrar skerð­ingar á sam­göng­um. 

Minni þjón­usta vegna und­ir­mönn­unar

Guðni Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Isa­via, segir í skrif­legu svari til Kjarn­ans að þegar erfitt hafi reynst að full­manna vaktir í flug­turnum og flug­stjórn­ar­mið­stöð hafi við­bragðs­á­ætlun vegna minni mönn­unar verið sett í gang. 

„Við­bragðs­á­ætlun vegna minni mönn­unar gengur þannig fyrir sig að ef færri eru á vakt­inni þá er álag minnkað með því að minnka þjón­ust­u,“ segir Guðni. „Það hefur ekki farið fram­hjá lands­mönnum að þjón­usta hefur oft verið minnkuð tölu­vert á flug­völlum lands­ins og það hefur ekki heldur farið fram­hjá flug­fé­lögum sem fljúga um íslenska flug­stjórn­ar­svæðið og þurft hafa að taka á sig sveig fram­hjá íslenska flug­stjórn­ar­svæð­inu með til­heyr­andi auk­inni elds­neyt­is­notk­un, til þess að hægt væri að minnka álag um íslenska flug­stjórn­ar­svæð­ið.“

Auglýsing

Alvar­legt að kjara­bar­átta tali niður öryggi

Hann segir við­bragðs­á­ætlun Isa­via almenna og í sam­ræmi við alþjóða­lög og reglu­gerðir og hafi verið sam­þykkt af eft­ir­lits­stofn­un­um. 

IFATCA eru sam­tök sem Félag íslenskra flug­um­ferð­ar­stjóra er aðili að og eru sam­tökin með þessu að taka þátt í kjara­bar­áttu flug­um­ferð­ar­stjóra. Það er alvar­legt mál þegar kjara­bar­átta fer á það stig að tala niður öryggi, sem er það mik­il­væg­asta þegar kemur að flug­i,“ segir Guðn­i. 

Vita af mann­eklu

Isa­via viti þó af þeirri mann­eklu sem sé í röðum flug­um­ferð­ar­stjóra. Tvær meg­in­or­sakir séu fyrir henni, ann­ars vegar hafi aukn­ing á flugi verið gríð­ar­lega hröð og hrað­ari en nokkrar spár gerðu ráð fyr­ir. 

„Hins vegar er það vegna þess að þó nokkuð margir úr stórum hópi nema í flug­um­ferð­ar­stjórn náðu ekki að klára námið og datt því stór hluti eins árgangs út. Nú eru yfir 30 nemar í þjálfun og munu þeir sem klára þá þjálfun bæt­ast í hóp flug­um­ferð­ar­stjóra á næstu 12 til 18,“ segir hann. „Vegna yfir­vinnu­banns sem var hluti af verk­falls­að­gerðum flug­um­ferð­ar­stjóra hefur námið þó taf­ist eitt­hvað, til dæmis hefðu nokkrir nem­anna nú þegar verið búnir að hefja störf sem flug­um­ferð­ar­stjórar ef bannið hefði ekki verið sett á.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None