Wikileaks birtir vandræðalega pósta Demókrata

Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Demókrataflokkinn þar sem þeir sýna að valdamikið fólk innan hans virðast hafa verið mjög hliðhollir Hillary Clinton í kosningabaráttu hennar og Bernie Sanders.
Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Demókrataflokkinn þar sem þeir sýna að valdamikið fólk innan hans virðast hafa verið mjög hliðhollir Hillary Clinton í kosningabaráttu hennar og Bernie Sanders.
Auglýsing

Wiki­leaks birtu um tutt­ugu þús­und tölvu­pósts­sam­skipti innan flokks­stjórnar Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum í gær­kvöld. Málið þykir hið vand­ræða­leg­asta fyrir flokk­inn, sér­stak­lega þar sem póst­arnir voru birtir á sama tíma og Hill­ary Clint­on, for­seta­efni Demókra­ta­flokks­ins, til­kynnti vara­for­seta­efni sitt, Tim Kaine. Í póst­unum er meðal ann­ars rætt um Bernie Sand­ers, sem tap­aði í for­vali fyrir Clint­on, og sam­skipti flokk­stjórn­ar­innar við fjöl­miðla­menn vest­an­hafs. 

Póstar frá topp­unum spanna eitt og hálft ár

Wiki­leaks birtu póstana með tengli á Twitter með mögu­leika á að leita innan gagna­grunns­ins. Lek­inn var kynntur sem „fyrsti hluti Hill­ar­y-­lek­ans.“ Þar er meðal ann­ars að finna yfir 10.000 pósta tengdum yfir­manni sam­skipta­sviðs Demókra­ta­flokks­ins, Luis Miranda, tæp­lega 4.000 pósta til og frá fjár­mála­stjór­anum Jor­don Kaplan og öðrum yfir­manni fjár­mála, Scott Comer. Tölvu­póst­arnir ná yfir tíma­bilið jan­úar 2015 til 25. maí 2016. Was­hington Post greinir frá því að póst­arnir koma frá rúss­neskum tölvu­hökk­urum sem náðu að brjót­ast inn í tölvu­kerfi Demókra­ta­flokks­ins. 

„Trúir hann á guð?“

Í einum póst­inum frá 5. maí síð­ast­liðnum sést hvar sam­skipta­stjór­inn, Luis Miranda, er að velta fyrir sér trú­araf­stöðu Bernie Sand­er­s. 

Auglýsing

„Það skiptir kannski ekki máli, en við ættum kannski að láta ein­hvern í Kent­ucky og Vestur Virg­iníu spyrja út í trú hans,“ segir Miranda, til net­fangs­ins mas­hall@dnc.org. Í svar­inu seg­ir: „Trúir hann á guð. Hann hefur skautað fram hjá því að hann er af gyð­inga­ætt­um. Ég held að ég hafi lesið að hann sé trú­leys­ingi. Þetta gæti skipt máli hjá mínu fólki. Í baptista­kirkj­unni minni mundi það skipta miklu máli hvort hann sé Gyð­ingur eða trú­leys­ing­i.“

Fríð­indi fyrir pen­inga­fólk

Fleiri sam­skipti af þessum toga er að finna í lek­anum og sýna svart á hvítu hversu hörð kosn­inga­bar­áttan á milli Sand­ers og Clinton varð. 

Í pósti frá Erik Stowe, fjár­mála­stjóra í Norður Kali­forniu fyrir Tammy Paster fjár­öfl­un­ar­ráð­gjafa útlistar það fríð­indi sem þeir sem veita styrki til flokks­ins eiga að fá fyrir lands­þing Demókra­ta­flokks­ins sem verður í Fíla­delfíu í næstu viku. Þeir sem gáfu mest fá svítu á lúx­us­hót­eli í Fíla­delf­íu, frí­miða á við­burði á þing­inu og sex miða á „VIP-­veislu“. 

Stuðn­ings­menn Don­alds Trump hafa eðli­lega not­fært sér lek­ann og hvetja nú Demókrata sem vildu fá Sand­ers sem full­trúa sinn, að kjósa Trump í stað­inn í ljósi þess hversu hlið­hollur Demókra­ta­flokk­ur­inn virð­ist hafa verið Clint­on.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None