Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í júní síðan árið 2008.
Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í júní síðan árið 2008.
Auglýsing

Atvinnu­leysi á Íslandi í júní­mán­uði hefur ekki mælst jafn lágt síð­ast­liðin átta ár eða síðan í júní árið 2008. Atvinnu­leysið var 2,3 pró­sent, sam­kvæmt frétt á vef Hag­stof­unnar og atvinnu­þátt­takan 85,3 pró­sent sem er örlítið minna en í sama mán­uði í fyrra.

Atvinnu­leysi mælist alla jafna lægst í júní, júlí og ágúst þegar atvinnu­rek­endur ráða fólk í sum­ar­afleys­ingar vegna sum­ar­fría. Atvinnu­leysið er hins vegar yfir­leitt mest í apríl og maí vegna nýrrar eft­ir­spurnar ungs fólks á aldr­inum 16 til 24 ára eftir bæði sum­ar­störfum og fram­tíð­ar­störf­um.

Auglýsing

Sé leið­rétt fyrir þessum árs­tíða­bundnu sveiflum þá mælist atvinnu­leysið 2,6 pró­sent, örlítið meira en það var í maí þegar það mæld­ist 2,2 pró­sent. Sé leitni gagn­anna síð­ustu ár skoðuð sést ber­sýni­lega að atvinnu­leysi fer minnk­andi á Íslandi. Sé aðeins horft til síð­ustu sex mán­aða sést að atvinnu­leysi hefur minnkað um 0,4 pró­sentu­stig. Sé hins vegar horft til alls síð­asta árs, eða síð­ustu 12 mán­aða, sést að atvinnu­leysið hefur minnkað um 1,2 pró­sentu­stig.

Í sund­ur­liðun talna Hag­stof­unnar sést að fleiri konur eru atvinnu­lausar en karl­ar. Alls er atvinnu­leysið 2,3 pró­sent. Meðal kvenna er það 2,5 pró­sent en 2,1 pró­sent meðal karla. Mun fleiri konur eru utan vinnu­mark­aðar en karl­ar. Þeir sem eru utan vinnu­mark­aðar eru um það bil 34.800 manns, eða 14,7 pró­sent af áætl­uðum fjölda fólks á aldr­inum 16 til 74 ára. Tveir þriðju þess hóps eru kon­ur.

Vinnu­mark­aður 16 til 74 ára í júní 2016

Heimild: Hagstofa Íslands.

Mæl­ing Hag­stof­unnar á atvinnu­leysi er gert með hefð­bund­inni könn­un. Fyrir mæl­ing­arnar í júní var haft sam­band við 1.517 ein­stak­linga á aldr­inum 16 til 74 ára sem valdir voru af handa­hófi úr þjóð­skrá. Þessi hópur minnk­aði í 1.481 þegar frá voru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlend­is. Enn fækk­aði í hópnum þegar aðeins not­hæf svör voru talin til. Not­hæf svör feng­ust frá 1.049 ein­stak­lingum og svör­un­ar­hlut­fallið því 70,8 pró­sent. Nið­ur­stöð­urnar eru vegnar eftir kyni og aldri. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None