Höskuldur: Útspil Sigmundar Davíðs setur allt í upplausn

26261478306_7e8bae2585_k.jpg
Auglýsing

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, seg­ist draga þá ályktun að nýjasta útspil Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­manns flokks­ins, um að halda ekki kosn­ingar í haust sé „til þess eins fallið að koma í veg fyrir þá mik­il­vægu vinnu sem framundan er í þing­inu og setja þar allt í upp­lausn. Slíkt myndi einnig sprengja rík­is­stjórn­ina og þar með færu mörg mál í súg­inn.“ 

Hann seg­ist draga þá ályktun að atburða­rás síð­ustu daga sé Sig­urði Inga Jóhanns­syni, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins mjög að móti skapi. Hösk­uldur bendir á að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi sam­þykkt það skil­yrði Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starfi að kosn­ingar yrðu haldnar í haust gegn því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi að skipa nýjan for­sæt­is­ráð­herra. Það sé því engin ástæða til að efast um að næstu þing­kosn­ingar „fari fram í vetr­ar­byrjun þótt enn sé óljóst með nákvæma dag­setn­ing­u.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Hösk­uldar á Face­book.

Færslu Hösk­uldar má lesa hér að neðan í heild sinn­i: 

Auglýsing

Í kjöl­far bréfs for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins til félags­manna hafa á ný kviknað efa­semdir um það hvort kosn­ingar verði haldnar í haust eða ekki. Í kjöl­far Panama­skjal­anna þar sem upp­lýst var um spill­ingu, leynd, skatt­svik fjöl­margra ein­stak­linga, sagði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra af sér. Í kjöl­farið sam­þykkti þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins það skil­yrði Sjálf­stæð­is­manna að kosn­ingar yrðu haldnar í haust gegn því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn féllist á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skip­aði áfram for­sæt­is­ráð­herra úr sínum röð­um. Á það féllst Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sig­urður Ingi Jóhannsnson tók við af for­manni flokks­ins. Þetta skil­yrði setti þing­flokkur Fram­sókn­ar­manna ekki síst til að tryggja að unnt væri að halda áfram vinnu við og klára mik­il­væg mál á borð við hús­næð­is­frum­vörp, afnám hafta, mik­il­vægar sam­göngu­bætur auk fleiri mála sem listuð voru upp í sam­komu­lag­inu.

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur unnið í sam­ræmi við þetta sam­komu­lag þrátt fyrir að mér og mörgum finn­ist það súrt í broti að ekki verði hægt að ljúka ýmsum öðrum málum sem við teljum einnig mik­il­væg. En ég lít svo á að ekki komi annað til greina en að standa við það sam­komu­lag sem gert var. Ég er ekki einn um þá skoðun í þing­flokknum - og bendi m.a. á orð Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem sagði í til­efni þeirrar atburða­rásar sem for­mað­ur­inn hefur hrundið af stað, að hann væri „vanur því að standa við orð sín“. Ég dreg þá ályktun að nýjasta atburða­rásin sé for­sæt­is­ráð­herra mjög að móti skapi. Nýjasta útspil for­manns flokks­ins er að mínu mati til þess eins fallið að koma í veg fyrir þá mik­il­vægu vinnu sem framundan er í þing­inu og setja þar allt í upp­lausn. Slíkt myndi einnig sprengja rík­is­stjórn­ina og þar með færu mörg mál í súg­inn.

Á meðan nákvæm dag­setn­ing kjör­dags liggur ekki fyrir mun áfram ríkja óvissa um það hvort flokk­arnir eigi að halda flokks­þing og raða fólki á lista þó að flestir séu vel á veg komnir með þá vinnu. Það er þó ekki ástæða til að efast um að næstu þing­kosn­ingar fari fram í vetr­ar­byrjun þótt enn sé óljóst með nákvæma dag­setn­ing­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None