Nánast allir sem flytja til Íslands umfram brottflutta eru útlendingar

druslugangan_19432731344_o.jpg
Auglýsing

Íbúum Íslands fjölg­aði um 1.760 á öðrum árs­fjórð­ungi 2016 og eru nú 336.060. 400 fleiri fædd­ust en dóu og 1.490 ein­stak­lingar fluttu til lands­ins umfram brott­flutta. Af þeim voru 150, eða tíu pró­sent, með íslenskt rík­is­fang en 1.330 voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­ar­ar. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2016 fluttu 40 fleiri Íslend­ingar til lands­ins umfram þá sem fluttu frá því. Á sama tíma­bili fluttu 2.440 fleiri erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins en yfir­gáfu það, sem þýðir að 98,3 pró­sent aðfluttra umfram brott­fluttra eru útlend­ing­ar. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hag­stofu Íslands.

Þar segir einnig að heild­ar­fjöldi aðfluttra til lands­ins frá apr­íl­byrjun til júníloka hafi verið 2.590. Alls fluttu 720 Íslend­ingar heim á árs­fjórð­ungnum en á sama tíma fluttu hingað 1.870 erlendir rík­is­borg­ar­ar. Því voru 72 pró­sent þeirra sem fluttu hingað á tíma­bil­inu erlendir rík­is­borg­ar­ar. Alls eru útlend­ingar á Íslandi nú 28.880 tals­ins, eða 8,6 pró­sent mann­fjöld­ans.

Flestir aðfluttir rík­is­borg­arar á árs­fjórð­ungnum komu frá Pól­landi, en þaðan fluttu 740 manns á umræddum þremur mán­uð­um. Flestir Íslend­ing­arnir sem snéru heim komu frá Dan­mörku, Nor­egi og Sví­þjóð, eða sam­tals 500 af þeim 720 sem það gerðu.

Auglýsing

Tólf þús­und störf hurfu en 16.300 urðu til

Fjölgun erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis er í rök­réttu sam­hengi við fjölgun starfa, enda atvinnu­leysi á Íslandi ein­ungis 2,3 pró­sent, sem er tölu­vert frá því 4 pró­senta jafn­væg­isat­vinnu­leysi sem þjóð­hags­líkan Seðla­banka Íslands miðar við. Atvinnu­leysið hefur ekki mælst minna frá því fyrir banka­hrun. Því er ljóst að mik­ill skortur er á vinnu­afli hér­lend­is.

Fyrir þau tólf þús­und störf sem töp­uð­ust á árunum 2008 til 2010 á Íslandi hafa orðið til 16.300 ný í stað­inn. Á árinu 2015 einu saman fjölg­aði störfum um sex þús­und. Bróð­­ur­­partur allra nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi eftir banka­hrun er til­­kom­inn vegna ferða­­þjón­­ustu og þau störf virð­­ast ekki mæta nema að hluta til vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­­kjör. Þess vegna virð­ist fjölgun starfa að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinn­u­afli á sama tíma og fleiri Íslend­ingar flytja af landi brott en til lands­ins.

Störfum mun fjölga, en ekki fyrir Íslend­inga

Í nýlegri grein­ingu Arion banka á vinnu­mark­aðnum þá og nú 
er bent á að þrátt fyrir þennan skort sem mynd­­ast hefur á vinn­u­­mark­aði þá flytja Íslend­ingar frekar úr landi, og því velt fyrir sér hvað valdi. Eitt sem spili þar inn í er aukin menntun vinn­u­afls, en hlut­­fall háskóla­­mennt­aðra á meðal starf­andi ein­stak­l­inga hefur auk­ist úr 11 pró­­sentum í tæp 34 pró­­sent frá árinu 1991 til loka síð­­asta árs.

Í grein­ing­unni seg­ir: „Á síð­­asta ári voru brott­­fluttir Íslend­ingar umfram aðflutta 1.265. Fjölgun starfa virð­ist því að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinn­u­afli en á sama tíma voru aðfluttir erlendir rík­­is­­borg­­arar umfram brott­­flutta 2.716. Auð­vitað eru marg­vís­­legar ástæður fyrir því að fólk flytur búferlum til lengri eða skemmri tíma og það er óneit­an­­lega jákvæð þróun að fólk hafi tæki­­færi til að freista gæf­unnar í öðru landi. Þessi þróun gefur til kynna að sú sköpun starfa sem orðið hefur síð­­­ustu ár sé enn sem komið er aðeins að hluta til að mæta vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­­kjör.“

Nið­­ur­­staða grein­ing­­ar­­deildar Arion banka er sú að flest bendi til þess að störfum muni halda áfram að fjölga mikið á næstu mis­s­er­­um. Á sama tíma sækja sífellt fleiri Íslend­ingar sér fram­halds- og háskóla­­mennt­unar og því sé spurn­ingin sem þjóðin standi frammi fyrir sú hvort mennt­unin sem Íslend­ingar eru að sækja sér falli að vinn­u­­mark­að­inum og umhverfi atvinn­u­­sköp­unar „eða hvort texti Spil­verks­ins muni eiga við: „Hér vantar tólin og tækin og réttu vanda­­mál­in.“ Spenn­andi verður að fylgj­­ast með fram­vind­unni á vinn­u­­mark­aði, hvort að ferða­­þjón­ustan haldi áfram að vera leið­andi í sköpun nýrra atvinn­u­tæki­­færa eða hvort aðrar atvinn­u­­greinar taki við kefl­inu, og hvernig fyllt verður upp í hinar nýju stöð­­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None