Óskar Jósefsson nýr framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála

óskar jósefsson stjórnstöð ferðamála
Auglýsing

Óskar Jós­efs­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála. Hann hefur starfað við stjórn­enda­ráð­gjör í mörg ár, bæði á almennum og opin­berum mark­aði, að því er segir í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­in­u. 

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Ósk­ari að starfið sé mjög áhuga­vert og mörg spenn­andi verk­efni bíði. „Inn­leið­ing Veg­vísis er komin vel af stað og mik­il­vægt að halda áfram að vinna að enn frek­ari sam­hæf­ingu og sam­þætt­ingu verk­efna á sviði ferða­mála. Flest bendir til þess að áfram verði öfl­ugur vöxtur í ferða­þjón­ustu. Við Íslend­ingar stöndum frammi fyrir ýmsum áhuga­verðum áskor­unum við að byggja upp sem besta umgjörð um þessa atvinnu­grein og með þeim hætti að um hana ríki  sátt í sam­fé­lag­in­u,“ er haft eftir hon­um. 

Óskar stofn­aði ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Advance ehf. árið 2008 og hefur rekið það síð­an, auk þess að sinna ýmsum öðrum verk­efn­um. Hann gegndi til skamms tíma starfi for­stjóra hjá Lands­síma Íslands hf. Hann var for­stjóri Ístaks hf. og fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga- og tækni­s­viðs Kaup­þings banka, auk þess sem hann stýrði ráð­gjafa­starf­semi PwC um nokkura ára skeið. Óskar er verk­fræð­ingur með M.Sc. gráðu í iðn­að­ar- og rekstr­ar­verk­fræði frá Dan­mörku.

Auglýsing

Hörður Þór­halls­­son, sem ráð­inn var fram­­kvæmda­­stjóri Stjórn­­­stöðvar ferða­­mála í fyrra­haust, hætti eftir hálfs árs starf. Hörður var ráð­inn í starfið á sama tíma af atvinn­u­­vega­ráðu­­neyt­inu. Þar var hann með verk­taka­­­samn­ing og fékk 1.950 þús­und krónur í heild­­­ar­­­laun á mán­uði. Stjórn Stjórn­­­­­stöðv­­­­­ar­innar tók ákvörðun um ráðn­­­ingu hans og staða fram­­­kvæmda­­­stjóra Stjórn­­­­­stöðvar ferða­­­mála var ekki aug­lýst. Ráðn­­ing­­ar­­ferlið þótti mjög umdeilt og var gagn­rýnt víða í sam­­fé­lag­in­u. Ragn­heiður Elín sagði í við­tali við Speg­il­inn í á þeim tíma að nýskipuð stjórn Stjórn­­­­­stöðv­­­­­ar­innar hafi vilj­að þung­­­ar­vigt­­­ar­­­mann" í stöðu fram­­­kvæmda­­­stjóra. Þau hafi orðið þess áskynja að Hörður væri á lausu og Ragn­heiður Elín sagði að hann hefði upp­­­­­fyllt þau skil­yrði sem sett hefðu verið fyrir starf­inu.

Til­­­kynnt var um stofnun Stjórn­­­­­stöðvar ferða­­­mála með við­hafn­­­ar­kynn­ingu í Hörpu í byrjun októ­ber 2015. Hlut­verk Stjórn­­­­­stöðv­­­­­ar­inn­ar átti að verða að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­­­anir og hags­muna­að­ila í ferða­­­þjón­­­ustu. Stjórn­­­­­stöð­inni var ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020. Hún var sett á lagg­­­irnar á grund­velli ­­­sam­komu­lags milli rík­­­i­s­tjórn­­­­­ar­inn­­­ar, Sam­­­bands íslenskra sveit­­­ar­­­fé­laga og Sam­­­taka ferða­­­þjón­ust­unn­­ar. Sig­­­mundur Davíð Gunn­laugs­­­son, þáver­andi for­­­sæt­is­ráð­herra, skip­aði í tíu full­­­trúa í stjórn Stjórn­­­­­stöðv­­­­­ar­inn­­­ar. Fjórir ráð­herrar eiga þar sæti, fjórir full­­­trúar frá Sam­­­tökum ferða­­­þjonust­unnar og tveir full­­­trúar Sam­­­bands íslenskra sveit­­­ar­­­fé­laga. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­­­að­­­ar- og við­­­skipta­ráð­herra, er for­­­maður Stjórn­­­­­stöðv­­­­­ar­inn­­­ar.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None