Kári: Völd gera flokkana alla eins

Kári Stefánsson segir einungis mun á stjórnmálaflokkum þegar þeir eru í stjórnarandstöðu. Hann segir Pírata ekki hafa neina pólitíska hugmyndafræði. Fjármálaráðherra eigi að leggja fram fjáraukalagafrumvarp til að bjarga heilbrigðiskerfinu í ágúst.

Kári Stefánsson
Auglýsing

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, vill að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra leggi fram frum­varp til fjár­auka­laga í ágúst til að losa sjúk­linga undar greiðslu­þátt­töku, efl Land­spít­al­ann og end­ur­reisa heilsu­gæsl­una. Allir þing­menn ættu að greiða frum­varp­inu atkvæði og sýna þannig að þeir þjóni þjóð­inni sem vill að þetta ger­ist.

Segir rík­is­stjórn Jóhönnu hafa holað kerf­ið 

Kári segir mun á stjórn­mála­flokkum virð­ast ein­ungis vera til staðar þegar þeir eru í stjórn­ar­and­stöðu. „Þegar þeir eru komnir í stjórn eru þeir allir eins án til­lits til hægri eða vinstri, upp eða nið­ur, himna­ríkis eða hel­vít­is,“ segir Kári Stef­áns­son í stöðu­færslu sinni á Face­book í morg­un. 

„En það er bara þannig með þessar póli­tísku hug­mynda­fræðir að þær virð­ast vera vita­gagns­laust drasl þeim sem eru komnir á valda­stóla og veitir okkur kjós­endum litla inn­sýn í það sem þeir kynnu að gera sem við viljum koma þang­að,“ skrifar hann og bætir við að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, end­an­lega hafa losað hann við þá tál­sýn að póli­tísk hug­mynda­fræði hafi for­spár­gildi um það hvernig stjórn­mála­menn hagi sér á valda­stól­u­m. 

Auglýsing

„Þegar í harð­bakk­ann sló hol­aði hún vel­ferð­ar­kerfið að inn­an, lét utan­rík­is­þjón­ust­una í friði, reisti Hörpu (að vísu vildi Katrín Jak­obs­dóttir láta mála vinstri hlið­ina á henni græna en það gleymd­ist) og byrj­aði að bora gat í gegnum Vaðla­heið­ina. Þetta var fyrsta hrein­rækt­aða félags­hyggju­rík­is­stjórnin í sögu lýð­veld­is­ins?“

Hann gerir grín að stjórn­mála­mönnum sem eru að und­ir­búa kosn­inga­bar­áttu og segir flesta flokk­ana nú virð­ast vera að stað­setja sig vinstra megin við þann stað sem þeir voru á fyrir síð­ustu kosn­ing­ar. Hann nefnir þar sér­stak­lega Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og orð hans í við­tali við Morg­un­blaðið á dög­unum þegar hann sagði að tími væri kom­inn til að efla frekar inn­viði sam­fé­lags­ins og vel­ferð­ar­kerf­ið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi aldrei lofað neinu, en nú sé hann komin í slíka aðstöðu með orðum Bjarna, en sé jafn­framt í aðstöðu til að svíkja eins og síð­asta rík­is­stjórn.

Píratar hafa enga póli­tíska hug­mynda­fræði að hunsa

Kári hvetur fólk til þess að ganga til kosn­inga með svolitla gleði í hjarta og greiða atkvæði með þeim flokki sem það hefur minnsta fyr­ir­litn­ingu á. 

„Ef þetta ger­ist ekki er hætta á því að við kjósum öll Píratana vegna þess að þeir hafa í raun réttri enga póli­tíska hug­mynda­fræði að hunsa, hafa ekki haft tæki­færi til þess að svíkja lof­orð og þótt þeir séu harla lítið sem ekki neitt eru þeir býsna hip og kúl. Það er nefni­lega þannig að óplægður akur í hraun­grýti getur verið svo miklu meira aðlað­andi en ill­gresið í garð­inum heima.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None