Hættir við einkasjúkrahús í Mosfellsbæ

Fjárfestar hafa fallið frá áformum um byggingu einkarekins sjúkrahúss í Mosfellsbæ.

Mosfellsbær
Auglýsing

Íslenskir fjár­festar eru hættir við að taka þátt í fram­kvæmd við einka­rekið sjúkra­hús sem til stóð að byggja í Mos­fells­bæ. Þeir segj­ast ósáttir við að ekki sé búið að gefa upp hvaða fólk stendur að baki hol­lenskum fjár­fest­inga­sjóði sem stendur að baki verk­efn­inu. RÚV greindi frá þessu í hádeg­is­frétt­u­m. 

Aðal­for­svars­maður fram­kvæmd­ar­inn­ar, Hol­lend­ing­ur­inn Henri Midd­eldorp, fer fyrir íslensku fyr­ir­tæki, MCBP, sem er að mestu í eigu hol­lensks félags, Burbanks Hold­ing. VHE véla­verk­stæði í Hafn­ar­firði og Gunnar Ármanns­son, lög­maður véla­verk­stæð­is­ins, áttu síðan eins pró­senta hlut hvor. Fram kemur hjá RÚV að Gunnar og for­stjóri véla­verk­stæð­is­ins hafa sagt sig úr stjórn félags­ins. Gunnar segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að hann og véla­verk­stæðið hafi jafn­framt afsalað hol­lenska móð­ur­fé­lag­inu hlutum sínum í því íslenska. 

Vildi ekki tjá sig við Kjarn­ann

Midd­eldorp vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarn­inn náði tali af hon­um í vik­unni. Hann sagði að for­svar­s­­menn sjúkra­hús­s­ins vildu bíða og sjá hvað yfir­­völd segðu um mál­ið, enda ætti málið að vera unnið í fullri sam­vinnu við þau. 

Áformin um sjúkra­húsið voru harð­lega gagn­rýnd, bæði af fólki í heil­brigð­is­geir­anum og svo stjórn­mála­mönn­um. Fram­kvæmdin átti að kosta um 50 millj­arða króna, svipað og bygg­ing nýs Land­spít­ala. 

Auglýsing

Bæj­ar­stjór­inn setti varnagla vegna umræð­unnar

Kjarn­inn greindi frá því í júlí að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins ætl­uðu ekki að hefja fram­kvæmdir fyrr en sótt verði um skattaí­viln­anir hjá stjórn­völd­um. Þá verði nöfn fjár­­­festa heldur ekki gerð opin­ber fyrr en umsagn­­irnar verða lagðar fram. Gögn um nöfn fjár­­­festa og mat frá við­­skipta­­banka verða lögð fyrir stjórn­­völd og höfðu for­svar­s­­menn sjúkra­hús­s­ins frest til þess fram til 1. des­em­ber 2017. 

Har­aldur Sverr­is­­son, bæj­­­ar­­stjóri Mos­­fells­bæj­­­ar, var þá ekk­ert sér­stak­lega bjart­sýnn um fram­tíð verk­efn­is­ins: „Svo getur vel verið að umræðan sem hefur skap­­ast í kring um þetta drepi verk­efn­ið. Það getur vel farið svo.“ 

Lögin skuli vernda heil­brigð­is­kerfið

Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis fund­aði um málið í gær. Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir, for­maður nefnd­ar­inn­ar, sagði við Kjarn­ann í gær að nauð­­syn­­legt sé ganga úr skugga um hvort íslensk lög geti tryggt að heil­brigð­is­­kerfi lands­ins sé ekki ógn­að. Nefndin fékk til sín full­­trúa frá vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­inu og Land­lækn­is­emb­ætt­inu til að fara yfir stöð­una. „Heil­brigð­is­­kerfið er grunn­­stoð í öllum sam­­fé­lögum og það er mik­il­vægt að lögin séu þannig að það sé ekki hægt að þróa kerfið í hvaða átt sem er eftir þörfum fjár­­­festa,“ sagði Sig­ríður Ingi­björg. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None