Framsóknarflokkur kynnir frumvarp um verðtryggð húsnæðislán eftir helgi

Forsætisráðherra segir að 40 ára jafngreiðslulán muni brátt heyra sögunni til, nái frumvarp Framsóknarflokksins fram að ganga. Frumvarpið verður kynnt eftir helgi. Hann segir fylgi Framsóknarflokksins í könnunum óásættanlegt.

Sigurður Ingi
Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætlar að kynna frum­varp um verð­tryggð hús­næð­is­lán eftir helgi. Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sagði á Hring­braut í morgun að frum­varpið sé unnið sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mál­an­um. Hann vildi ekki svara hvort málið væri unnið í fullri sam­vinnu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Auglýsing

Koma „mynd­ar­lega til móts við kaup­endur á fyrstu fast­eign“

Sam­kvæmt Sig­urði Inga munu 40 ára jafn­greiðslu­lán til hús­næð­is­kaupa heyra sög­unni til verði frum­varpið sam­þykkt. Hvatar verði settir fram til þess að bjóða upp á óverð­tryggð lán og það verði á ein­hvern hátt sam­tvinnað við sér­eigna­sparnað fólks. Þá verði komið „mynd­ar­lega til móts við kaup­endur á fyrstu fast­eign.“ Spurður hvort um verði að ræða fram­lag úr rík­is­sjóði sagði Sig­urður Ingi svo ekki vera. Þó verði um að ræða að stórar breyt­ingar á lána­formi sem bjóð­ast við íbúð­ar­kaup, en breyt­ing­arnar eigi þó ekki við um lán sem fyrir eru.

Sig­urður Ingi sagði að fyrstu hug­myndir Fram­sókn­ar­flokks­ins um afnám verð­trygg­ingar hafi verið sam­tvinn­aðar við skulda­nið­ur­fell­ing­una, en sér­fræð­ingar höfðu sagt það of flók­ið. Því verði þessi leið far­in, en hann vildi ekki fara nánar út í frum­varpið þar sem það verði kynnt í heild sinni eftir helgi.

Fer ekki fram gegn for­manni sem nýtur stuðn­ings

Varð­andi sam­skipti sín við for­mann flokks­ins, Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, sagði Sig­urður Ingi þau vera góð. Hann sagði að vissu­lega væri óvenju­leg staða uppi, að for­maður flokks­ins sé ekki í rík­is­stjórn, en í því gætu samt sem áður falist sókn­ar­færi í aðdrag­anda kosn­inga. Hann fór ekki nánar út í það.

Spurður út í slakt fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í skoð­ana­könn­unum sagði Sig­urður Ingi það alltaf vera von­brigði þegar maður sé að gera eitt­hvað vel en fái það ekki met­ið. Hann vildi „njóta ávaxt­anna yfir því að hafa búið til svona góða stöð­u.“ Fylgið sé óásætt­an­legt fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn miðað við sögu hans og afrek. 

Sig­urður Ingi sagð­ist ekki hafa önnur plön en að leiða lista flokks­ins í suð­ur­kjör­dæmi, en varð­andi hvort hann bjóði sig fram sem for­mann sagði Sig­urður Ingi að Sig­mundur Davíð væri for­maður og að hann færi ekki gegn sitj­andi for­manni sem nyti stuðn­ings flokks­manna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None