Bjarni: Eygló ekki „með í liðinu“

Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina ekki geta verið eins og leikskóla þar sem barið sé í borðið þangað til hver fái það sem hann vill.

losun-gjaldeyrishafta_17982637733_o.jpg
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er ekki lengur „með í lið­inu“ og getur ekki gert miklar kröfur um að fá fram­gang ann­arra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráð­herrar eru að fá. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við RÚV

Eygló sat hjá í atkvæða­greiðslu um fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í gær. Ákvörðun hennar hefur verið harð­lega gagn­rýnd af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hafa spurt að því opin­ber­lega hvers vegna hún hætti ekki í rík­is­stjórn­inni í ljósi þess að hún hafi ekki stutt þessi stóru mál sem lögð voru fram í nafni henn­ar. 

Bjarni segir við RÚV að það sæti tíð­indum að ráð­herra styðji ekki lyk­il­mál og eðli­legt sé að menn verði hvumsa við. Eygló sé hins vegar ekki ráð­herra á hans ábyrgð. Hvorki hann né þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins myndu sætta sig við að ráð­herra úr þeirra liði sæti hjá í atkvæða­greiðslu af þessu tag­i. 

Auglýsing

„Þetta er ekki þannig að ég velji í rík­is­stjórn fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og ég ætl­a ekk­ert að skipta mér að því hvernig þeir raða sínum mál­um, þeir verða að gera það sjálf­ir. Það er lang­best að fylgja ein­faldri línu í þessu, rík­is­stjórnin sest yfir það eftir að ráð­herra­nefnd hefur skoðað þau mál, sem­sagt hvaða svig­rúm er til staðar og hvernig við ætlum að skipta því. Svo er fengin nið­ur­staða. Ef menn segj­ast ætla að setj­ast hjá við það þá eru þeir bara ekki með í lið­in­u,“ sagði Bjarn­i. 

Þegar hann var spurður að því hvort það væri þá hans mat að Eygló væri ekki með í lið­inu sagði hann: „Nei hún getur ekki gert ­miklar kröfur um að fá fram­gang ann­arra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráð­herrar eru að fá. Þetta getur ekki verið bara eins og í leik­skóla að menn berji í borðið þangað til hver fái það sem hann vill. Þá verður bara rík­is­stjórnin óstarf­hæf og allt verður í við­stöðu­lausri upp­lausn. En sem betur fer erum við þó ekki komin á þann stað.“

Eygló sagði við RÚV í morgun að hún hefði ekki íhugað að segja af sér vegna máls­ins. „Það hefur ekk­ert verið rætt og ég hef ekki íhugað það. Ég hef sinnt mínum verk­efnum af mik­illi trú­mennsku, barist fyrir bættum kjörum líf­eyr­is­þega og fjöl­skyldna og ég mun halda áfram að gera það.“ Það væri mjög ein­kenni­legt að heyra fólk segja að þing­menn eigi ekki að standa á sann­fær­ingu sinn­i. 

Hún seg­ist ekki hafa tekið ákvörðun um að gefa kost á sér sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og seg­ist ekki vera á leið úr flokkn­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None