Framsókn auglýsir eftir konum í framboð

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra er ein af tveimur konum sem lýst hefur yfir framboði á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Flokkinn vantar að minnsta kosti fjórar konur í viðbót til að uppfylla eigin reglur.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra er ein af tveimur konur sem lýst hefur yfir framboði á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Flokknum vantar að minnsta kosti fjórar konur í viðbót til að uppfylla eigin reglur.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra er ein af tveimur konur sem lýst hefur yfir framboði á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Flokknum vantar að minnsta kosti fjórar konur í viðbót til að uppfylla eigin reglur.
Auglýsing

Kjör­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík hefur aug­lýst sér­stak­lega eftir fram­boðum frá konum til að sitja á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur í kom­andi kosn­ing­um. Í aug­lýs­ing­unni, sem birt­ist á vef flokks­ins, segir að sam­kvæmt reglum Fram­sókn­ar­flokks­ins þurfi að lág­marki ein kona að skipa eitt af fjórum efstu sæt­unum og þrjú af efstu sjö sæt­unum í hverju kjör­dæmi fyrir sig. Þegar frestur til að skila inn fram­boðum fyrir lista flokks­ins í Reykja­vík rann út 12. ágúst síð­ast­lið­inn höfðu ein­ungis tvær konur skilað inn fram­boði. Þær eru Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Ásgerður Jóna Flosa­dótt­ir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands. Tíu karlar skil­uðu hins vegar inn fram­boði í Reykja­vík. Því vantar að minnsta kosti fjórar konur á lista flokks­ins í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum til að list­arnir séu í sam­ræmi við reglur Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Tvær konur buðu sig fram

Tvö­falt kjör­dæma­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins fer fram næsta laug­ar­dag, 27. ágúst. Þar verður valið á lista vegna kom­andi þing­kosn­inga. Kosið verður um fimm efstu sætin í hvoru kjör­dæmi fyrir sig og var fram­boðs­frestur til 12. ágúst 2016. Þegar frest­ur­inn var lið­inn lá ljóst fyrir að tólf buðu sig fram á lista flokks­ins í Reykja­vík.

Auglýsing

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sæk­ist ein eftir efsta sæt­inu í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður en í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður sækj­ast þeir Karl Garð­ars­son alþing­is­mað­ur, Þor­steinn Sæmunds­son alþing­is­maður og Haukur Logi Karls­son lög­fræð­ingur allir eftir efsta sæt­inu. Þá sæk­ist Lárus Sig­urður Lár­us­son hér­aðs­dóms­lög­maður eftir 2. sæt­inu í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur. Aðrir sem sækj­ast eftir 2.-5. sæti eru: Alex Björn B. Stef­áns­son háskóla­nemi, Ásgerður Jóna Flosa­dótt­ir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, Björn Ívar Björns­son háskóla­nemi, Gissur Guð­munds­son mat­reiðslu­mað­ur, Gunnar Krist­inn Þórð­ar­son stjórn­sýslu­fræð­ing­ur, Ingvar Mar Jóns­son flug­stjóri og vara­borg­ar­full­trúi og Sævar Þór Jóns­son hér­aðs­dóms­lög­mað­ur.

Fram­boð kvenn­anna tveggja, Lilju og Ásgerðar Jóna, nægja til að reglu Fram­sókn­ar­flokks­ins um að ein kona sé á meðal þriggja efstu á lista sé fram­fylgt. Það vantar hins vegar að minnsta kosti fjórar konur í efstu sjö sætin á hvorum lista til að regla flokks­ins um að þrír af efstu sjö þurfi að vera konur sé upp­fyllt. Þær konur sem hafa áhuga á að bjóða sig fram fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík eru í aug­lýs­ingu á vef flokks­ins beðnar um að hafa sam­band við for­mann kjör­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir 25. ágúst næst­kom­andi.

For­ystu­konur ætla ekki aftur fram

Tvær konur voru í for­ystu­sveit Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík í þing­kosn­ing­unum 2013. Vig­dís Hauks­dótt­ir, nú for­maður fjár­laga­nefnd­ar, sat í efsta sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Sig­rún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra sat í öðru sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur. Hvorug þeirra ætlar að gefa kost á sér í kom­andi kosn­ing­um, sem fyr­ir­hug­aðar eru 29. októ­ber næst­kom­andi.

Þá sat Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir í þriðja sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Sunna Gunn­ars Mart­eins­dóttir í því sjötta. Svein­björg Birna leiddi fram­boð Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014 og er nú borg­ar­full­trúi í Reykja­vík en Sunna er aðstoð­ar­maður Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Hvorug þeirra hefur lýst yfir fram­boði í kom­andi kosn­ing­um.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður sátu Fanný Gunn­ars­dótt­ir, kenn­ari og náms- og starfs­ráð­gjafi, og Snæ­dís Karls­dótt­ir, þá laga­nemi, í fjórða og fimmta sæti á fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hvorug þeirra hefur lýst yfir fram­boði í kom­andi kosn­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None