Sigmundur Davíð fagnar ákvörðun Illuga

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fagnar ákvörðun Ill­uga Gunn­ars­son­ar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að semja við Háskól­ann á Akur­eyri um að sjá um lög­reglu­nám. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hans á Face­book. Þar segir Sig­mundur Dav­íð: „Góð ákvörðun hjá mennta­mála­ráð­herra að semja við Háskól­ann á Akur­eyri um lög­reglu­nám­ið. Reynsla skól­ans af fjar­námi og því að sinna land­inu öllu mun nýt­ast vel. Skól­inn reynd­ist mjög hæfur til að taka að sér námið og aukin umsvif munu svo gera hann enn hæf­ari til að auka umsvifin áfram. Sem­sagt, jákvæð keðju­verk­un!“



Auglýsing

Mats­­nefnd um lög­­­reglu­­nám á háskóla­­stigi, sem mennta- og mennning­­ar­­mála­ráð­herra skip­aði 20. júlí, komst að þeirri nið­­ur­­stöðu að Háskóli Íslands væri hæf­astur til að taka við kennslu- og rann­­sókn­­ar­­starf­­semi a sviði lög­­­reglu­fræða. Samt ákvað ráð­herrann, Ill­ugi Gunn­­ar­s­­son, að ganga til samn­inga við Háskól­ann á Akur­eyri, sem þótti næst hæf­astur sam­­kvæmt nið­­ur­­stöðu nefnd­­ar­inn­­ar, um að taka við lög­­­reglu­­nám­inu. Því er ljóst að byggð­ar­sjón­ar­mið höfðu áhrif á nið­ur­stöðu ráð­herr­ans, en rektor Háskóla Íslands sagði við mbl.is fyrr í dag að umsókn­ar­ferlið hafi gengið út frá því að um stað­nám yrði að ræða. 

Háskól­inn á Bif­röst og Háskól­inn í Reykja­vík sótt­ust einnig eftir að fá lög­reglu­nám­ið. Nið­­ur­­staða mats­­nefnd­­ar­innar var sú að að allir háskólar nema sá á Bif­röst væru hæfir til að taka við lög­­­reglu­­nám­inu. Háskóli Íslands var hins vegar met­inn hæf­astur allra, og fékk 128 stig af 135 mög­u­­leg­­um. Þar á eftir kom Háskól­inn á Akur­eyri með 116 stig af 135 og síð­­astur var Háskól­inn í Reykja­vík með 110 stig af 135. 

Vil­hjálmur Egils­son, rektor Háskól­ans á Bif­röst, var ekki ánægður með nið­ur­stöð­una og skrif­aði harð­orða grein í kjöl­far henn­ar. Þar segir hann að rekin sé nýlend­urstefna höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gegn lands­byggð­inni. „Niður­staða mín vegna þeirrar nýlendu­þró­unar sem ég skynja í sam­skiptum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggð­ar­innar er sú að fyrr eða síðar kemur til stofn­unar flokks á svip­uðum grunni og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn. Sá flokkur mun þá hafa á stefnu­skrá sinni að Ísland verði sam­bands­ríki þar sem sem lands­byggðin getur þá tekið málin í eigin hend­ur.  Það ger­ist ekki fyrir þessar kosn­ingar en gæti vel gerst fyrir þær næstu ef núver­andi flokka­kerfi snýr ekki af braut nýlendu­stefn­unn­ar,“ segir Vil­hjálmur meðal ann­ars í grein­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None