Sigurður Ingi
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. R

Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við til­lögur stjórn­ar­skrár­nefndar og fela í sér þrjú ný ákvæði í stjórn­ar­skrá. Nefndin lagði til að sett yrði inn almennt ákvæði um að auð­lindir nátt­úru Íslands til­­heyri íslensku þjóð­inni, ákvæði um umhverf­is- og nátt­úru­vernd og ákvæði þar sem lagt er til að 15% kosn­­inga­­bærra manna geti knúið fram þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu um lög frá Alþingi. Ekki náð­ist sam­komu­lag um ákvæði um fram­­sal vald­heim­ilda í þágu alþjóða­­sam­vinn­u. 

Sam­kvæmt frum­varpi Sig­urðar Inga koma þrjár nýjar greinar í stjórn­ar­skrána á eftir 78. grein henn­ar, um nátt­úru Íslands, auð­lindir nátt­úru Íslands og um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­ur. 

Auglýsing

Breyt­ing­arnar má sjá hér að neð­an. 

a. (79. gr.)

    ­Nátt­úra Íslands er und­ir­staða lífs í land­inu. Ábyrgð á vernd nátt­úru og umhverfis hvílir sam­eig­in­lega á öllum og skal verndin grund­vall­ast á var­úð­ar- og lang­tíma­sjón­ar­miðum með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi. Stuðlað skal að því að fjöl­breytni nátt­úr­unnar sé við­haldið og vöxtur líf­ríkis og við­gangur tryggð­ur. 

    Allir skulu njóta heil­næms umhverf­is. Almenn­ingi er heimil för um landið og dvöl þar í lög­mætum til­gangi. Ganga skal vel um nátt­úr­una og virða hags­muni land­eig­enda og ann­arra rétt­hafa. Mælt skal nánar fyrir í lögum um inn­tak og afmörkun almanna­rétt­ar. 

    Í lögum skal mælt fyrir um rétt almenn­ings til upp­lýs­inga um umhverfið og áhrif fram­kvæmda á það svo og til þátt­töku í und­ir­bún­ingi ákvarð­ana sem áhrif hafa á umhverf­ið.



    b. (80. gr.)

    Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Þær ber að nýta á sjálf­bæran hátt og til hags­bóta lands­mönnum öll­um. Ríkið hefur eft­ir­lit og umsjón með með­ferð og nýt­ingu auð­lind­anna í umboði þjóð­ar­inn­ar.

    ­Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Eng­inn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja gæðin eða veð­setja. Hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­ræði og ráð­stöf­un­ar­rétt þeirra í umboði þjóð­ar­inn­ar.

    Að jafn­aði skal taka eðli­legt gjald fyrir heim­ildir til nýt­ingar nátt­úru­auð­linda og lands­rétt­inda sem eru í eigu íslenska rík­is­ins eða þjóð­ar­eign. Veit­ing nýt­ing­ar­heim­ilda skal grund­vall­ast á lögum og gætt skal jafn­ræðis og gagn­sæ­is. Slíkar heim­ildir leiða aldrei til var­an­legs eign­ar­réttar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis yfir nátt­úru­auð­lindum eða lands­rétt­indum í þjóð­ar­eign.



    c. (81. gr.)

    Fimmtán af hundraði kosn­ing­ar­bærra manna geta kraf­ist þess að nýstað­fest lög frá Alþingi verði borin undir þjóð­ina í almenn­ri, leyni­legri og bind­andi atkvæða­greiðslu. Kröf­una ber að leggja fyrir ráð­herra innan sex vikna frá birt­ingu lag­anna og skal atkvæða­greiðslan fara fram í fyrsta lagi sex vikum og í síð­asta lagi fjórum mán­uðum eftir að stað­fest krafa liggur fyr­ir. Fjár­lög, fjár­auka­lög, lög um skatta­mál­efni og lög sem sett eru til að fram­fylgja þjóð­rétt­ar­skuld­bind­ingum verða ekki borin undir þjóð­ina sam­kvæmt þess­ari máls­grein. 

    Fimmtán af hundraði kosn­ing­ar­bærra manna geta enn fremur kraf­ist þess að ályktun Alþingis skv. 21. gr. verði borin undir þjóð­ina í almenn­ri, leyni­legri og bind­andi atkvæða­greiðslu. Heim­ilt er með lög­um, sem sam­þykkt eru með 2/3 hlutum atkvæða á Alþingi, að ákveða að sama gildi um álykt­anir sem hafa rétt­ar­á­hrif eða fela í sér mik­il­væga stefnu­mörk­un. Krafan þarf að ber­ast ráð­herra innan sex vikna frá sam­þykkt Alþingis og skal atkvæða­greiðslan fara fram í fyrsta lagi sex vikum og í síð­asta lagi fjórum mán­uðum eftir að stað­fest krafa liggur fyr­ir.

    Al­þingi getur fellt úr gildi lög eða aft­ur­kallað ályktun áður en til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu kemur og fer hún þá ekki fram.

    Til þess að hnekkja lögum eða álykt­unum sam­kvæmt þess­ari grein þarf meiri hluti í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, þó minnst fjórð­ungur kosn­ing­ar­bærra manna, að synja þeim sam­þykk­is. 

    ­Með lög­um, sem sam­þykkt eru með 2/3 hlutum atkvæða á Alþingi, skal mælt nánar fyrir um upp­hafs­tíma og fyr­ir­svar und­ir­skrifta­söfn­un­ar, form og söfnun und­ir­skrifta, miðlun upp­lýs­inga, fram­kvæmd þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og lausn ágrein­ings­mála fyrir dóm­stól­um.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None