Aðeins þrír bjóða sig fram hjá Samfylkingu í Norðvesturkjördæmi

ólína þorvarðardóttir
Auglýsing

Ekki verður hægt að kjósa um fjögur efstu sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eins og til stóð að gera í lok­uðu flokksvali. Ástæðan er sú að það buðu sig bara fram þrír ein­stak­lingar í próf­kjör­inu. Bæj­ar­ins besta á Ísa­firði greindi frá þessu. 

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Geir Guð­jóns­son, for­maður kjör­stjórn­ar, að fleiri hafi boðið sig fram í próf­kjör­inu, í þriðja og fjórða sæti list­ans. Hann hafi verið þar á með­al. Hins vegar hafi verið tekin ákvörðun um að minnka próf­kjörið, enda fylgi tölu­verður kostn­aður þátt­töku í próf­kjöri í svo stóru kjör­dæmi, og ljóst hefði verið að þann kostnað þurfi að greiða þann kostnað sjálf­ir. Því hafi aðrir fram­bjóð­endur dregið sig til baka og ákveðið hafi verið að stilla upp á list­ann frá og með þriðja sæt­i. 

Ólína Þor­varð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu, býður sig fram til að leiða list­ann. Hún var í öðru sæti fyrir síð­ustu kosn­ingar en kom inn á þing þegar Guð­bjartur Hann­es­son, sem leiddi list­ann, lést. Guð­jón Brjáns­son og Inga Björk Bjarna­dóttir sækj­ast einnig eftir því að leiða list­ann. 

Auglýsing

Flokksvalið á að fara fram 8.-10. sept­em­ber næst­kom­andi og til stóð að kosn­ing í fyrstu fjögur sætin yrði bind­andi og jafn­ræði kynja yrði gætt með para­lista. Þar sem aðeins þrír buðu sig fram á end­anum verður ekki hægt að kjósa um fjögur sæti, heldur verður þess í stað bind­andi kosn­ing um efstu tvö sæt­in. 

Sam­fylk­ingin heldur einnig próf­kjör í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og Suð­vest­ur­kjör­dæmi á sama tíma. Ekki er búið að loka fyrir fram­boðs­frest í þeim kjör­dæm­um. 

Inn í frétt­ina hefur verið bætt upp­lýs­ingum frá Geir Guð­jóns­syni, for­manni kjör­stjórn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None