Leikskólar borgarinnar sjaldan búið við þrengri skilyrði

Leikskólastjórnendur segja niðurskurð hjá leikskólum borgarinnar vera kominn á hættulegt stig.

dagur-b-eggertsson_14428169166_o.jpg
Auglýsing

Rekstr­ar­skil­yrði leik­skóla í Reykja­vík eru verri nú en síð­ustu fimmtán ár, að mati Önnu Mar­grétar Ólafs­dótt­ur, leik­skóla­stjóra Nóa­borg­ar, en hún tjáði sig um vanda leik­skól­ana á Face­book síðu sinn í gær og við­tali við RÚV

Hún segir að staða mála í kjöl­far hruns­ins hafi verið mun betri en hún er núna. Rekst­ur­inn hafi aldrei verið eins erf­iður og und­an­farið ár. Svið­stjóri Skóla- og frí­stunda­sviðs segir að leik­skólum borg­ar­innar sé snið­inn of þröngur stakk­ur.

Hluti af hag­ræð­ing­ar­að­gerðum Reykja­vík­ur­borg­ar, með það að mark­miði að styrkja grunn­rekst­ur­inn, voru aðhalds- og hag­ræð­ing­ar­að­gerðir í leik- og grunn­skól­u­m. 

Auglýsing

Sig­rún Björns­dótt­ir, hjá Reykja­vík­ur­borg, sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, að unnið hefði verið eftir hag­ræð­ing­ar­á­ætlun hjá borg­inni allt árið, til að bregð­ast við verri stöðu hjá Reykja­vík­ur­borg. „Hag­ræð­ing­ar­krafa á allar starfs­stöðvar skóla- og frí­stunda­sviðs og allar stofn­anir borg­ar­innar lá fyrir í jan­úar á þessu ári vegna verri fjár­hags­stöðu borg­ar­inn­ar. Hag­ræð­ing­ar­verk­efnin hafa verið sam­bæri­leg hjá leik­skólum og grunn­skólum og snúa aðal­lega að inn­kaupum á vöru og þjón­ustu, þar með talið inn­kaupum á mat­vöru sem leit­ast verður við að mæta með sam­ræmdum inn­kaupa­ferl­um. Að auki verður end­ur­skoðað fyr­ir­komu­leg stuðn­ings og sér­kennslu. Hag­ræð­ingin nemur u.þ.b. 0,8% af heild­ar­rekstri leik­skól­anna í borg­inni. Aðal­hag­ræð­ingin verður í mið­lægri stjórn­sýslu eða allt að 5%,“ segir í svari Sig­rún­ar.

Anna Mar­grét nefnir dæmi um þrönga stöðu í Face­book færslu sinn­i. ­Leik­skólar fái minna fjár­magn til að kaupa mat en eigi samt að fylgja lýð­heilsu­m­ark­mið­um. Nið­ur­skurð­ur­inn bitni á börn­un­um. „Fyrir rúmar 30.000 kr. á dag á ég að sjá 100 manns fyrir morg­un­mat, ávaxta­stund, hádeg­is­verði og síð­deg­is­hress­ingu. Bara fisk­ur­inn kostar t.d. um 24.000 og þá er allt annað eft­ir,“ segir Anna Mar­grét. 

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, sagði á Face­book síðu sinni á dög­un­um, að hag­ræð­ing­ar­að­gerðir borg­ar­innar væru að skila ánægju­legum árangri. Hag­ræð­ing­ar­vinna og hærri skatt­tekjur skil­uðu borg­inni jákvæðri nið­ur­stöðu á A-hluta upp á 490 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Í heild­ina var áformað að ná fram 604 millj­óna króna hag­ræð­ingu borg­ar­sjóðs á fyrri hluta árs­ins en aðgerðir skil­uðu um 611 millj­óna hag­ræð­ingu, að því er segir á vef borg­ar­innar. Innan A-hluta er hinn almenni rekstur borg­ar­innar sem fjár­magn­aður er af skatt­tekj­um.

Rekstr­ar­nið­ur­staða A-hluta var jákvæð um 490 millj­ónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði nei­kvæð um 300 mkr á tíma­bil­inu. Nið­ur­staðan er því 790 millj­ónum króna betri en gert var ráð fyr­ir. Betri rekstr­ar­nið­ur­staða skýrist að stærstum hluta af hærri skatt­tekj­um, sem voru 554 millj­ónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir og hag­ræð­ing­ar­vinnu á fagsviðum borg­ar­innar sem skil­uðu 611 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.  

En þessi hag­ræð­ing hefur ekki náðst fram sárs­auka­laust, eins og sést á rekstri leik­skól­ana, sm hefur sjaldan eða aldrei verið þyngri og erf­ið­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None