25 þingmenn leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn í Vatnsmýri

flugvöllur vatnsmýri
Auglýsing

25 þing­menn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi um að efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs skuli áfram vera í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík. 

Þing­menn­irnir koma úr Vinstri græn­um, Fram­sókn­ar­flokkn­um, Sjálf­stæð­is­flokknum og Sam­fylk­ing­unn­i. 

Ögmundur Jón­as­son og Lilja Raf­ney Magn­ús­dóttir úr VG, Krist­ján Möller úr Sam­fylk­ing­unni og þau Elín Hir­st, Jón Gunn­ars­son, Ásmundur Frið­riks­son, Brynjar Níels­son, Geir Jón Þór­is­son, Har­aldur Bene­dikts­son, Val­gerður Gunn­ars­dóttir og Vil­hjálmur Árna­son úr Sjálf­stæð­is­flokkn­um. 

Auglýsing

Allir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins sem ekki eru í rík­is­stjórn eru flutn­ings­menn, fyrir utan Frosta Sig­ur­jóns­son sem ekki er flutn­ings­maður til­lög­unn­ar. Þetta eru þau Hösk­uldur Þór­halls­son, Ásmundur Einar Daða­son, Elsa Lára Arn­ar­dótt­ir, Har­aldur Ein­ars­son, Jóhanna María Sig­munds­dótt­ir, Karl Garð­ars­son, Líneik Anna Sæv­ars­dótt­ir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, Vig­dís Hauks­dótt­ir, Páll Jóhann Páls­son, Willum Þór Þórs­son, Þor­steinn Sæmunds­son og Þór­unn Egils­dótt­ir. 

Mark­mið þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar er að þjóðin fái tæki­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­völl­ur­inn og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð, að því er fram kemur í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. m.a. „Ljóst er að ríkir almanna­hags­munir fel­ast í greiðum sam­göngum innan lands og að stað­setn­ing flug­vall­ar­ins og mið­stöðvar inn­an­lands­flugs hefur afar mikla þýð­ingu í því sam­hengi. Þá er ekki síður ljóst að vegna sjúkra- og neyð­ar­flugs, svo og hlut­verks síns sem vara­flug­völl­ur, gegnir flug­völl­ur­inn mjög mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir almenn­ing,“ segir í til­lög­unn­i. 

Þá er sagt brýnt að þjóðin fái tæki­færi til að segja hug sinn varð­andi málið og hafa þannig áhrif á end­an­lega nið­ur­stöðu máls­ins, sem gæti meðal ann­ars falist í til­færslu á skipu­lags­legu ákvörð­un­ar­valdi með lög­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None