Vill setja 90-98 prósent skatt á bónusgreiðslur

Þorsteinn Sæmundsson sést hér á milli Agnesar Sigurðardóttur biskups og Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
Þorsteinn Sæmundsson sést hér á milli Agnesar Sigurðardóttur biskups og Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
Auglýsing

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, leggur til að lagður verði 90-98 pró­sent skattur á bón­us­greiðslur hið fyrsta. Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, lagði einnig til háan skatt á slík­ar. Þetta kom fram í umræðum um bón­us­greiðslur á Alþingi í dag.

Þar sagði Þor­steinn að skatt­ur­inn ætti að leggj­ast á bón­us­greiðsl­urnar til þess að „við getum tryggt að þessi fram­lög slita­bú­anna sem eru að koma til Íslands lendi ekki í fjög­urra til fimm manna hóp heldur hjá þjóð­inni allri.“

Ástæða umræð­unnar eru fréttir í DV und­an­farna daga um áætl­anir eign­ar­halds­fé­laga sem tóku við eignum slita­búa Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans um að greiða starfs­mönnum sínum him­in­háar bón­us­greiðslur fyrir að koma eign­unum í verð.

Auglýsing

Fjórir má hund­ruð millj­óna hver

Í DV í dag var greint frá því að fjórir stjórn­­endur LBI, eign­­ar­halds­­­fé­lags utan um eignir gamla Lands­­bank­ans, geti fengið sam­tals mörg hund­ruð millj­­ónir króna í bón­us­greiðslur hver um sig á kom­andi árum ef vel gengur að koma eignum félags­­ins í verð. Á meðal fjór­­menn­ing­anna eru Kol­beinn Árna­­son, sem hætti sem fram­­kvæmda­­stjóri hjá Sam­­tökum fyr­ir­tækja í sjá­v­­­ar­út­­­vegi (SFS) fyrr á þessu ári og sett­ist í stjórn LBI. Þar er líka Ársæll Haf­­steins­­son, fram­­kvæmda­­stjóri LBI. Hinir tveir menn­irnir sem fá slíka bónusa eru Ric­hard Katz, stjórn­­­ar­­for­­maður LBI, og Christ­ian And­ers Dig­emose, danskur ráð­gjafi og lög­­­maður sem starfað hefur fyrir kröf­u­hafa föllnu íslensku bank­anna á und­an­­förnum árum.

Gangi til­­­teknar for­­sendur eftir sem bón­us­­kerfið grund­vall­ist á gætu heild­­ar­­bón­us­greiðslur til þess­­ara fjög­­urra æðstu stjórn­­enda félags­­ins hæg­­lega hlaupið sam­tals á millj­­örðum króna. 

1,5 millj­­arður hjá Kaup­­þingi

Greint var frá því í DV í síð­­­ustu viku að um tutt­ugu starfs­­­­menn eign­­­­ar­halds­­­­­­­fé­lags­ins Kaup­­­­þings, sem tók við hlut­verki slita­­­­bús Kaup­­­­þings að loknum nauða­­­­samn­ingum bank­ans í lok árs í fyrra, geta fengið sam­tals tæp­­­­lega 1.500 millj­­­­ónir króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkum á virði óseldra eigna félags­­­­ins næst. Bón­us­greiðsl­­­­urnar eiga að greið­­­­ast út ekki síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eign Kaup­­­­þings er 87 pró­­­­sent hlutur í Arion banka, við­­­­skipta­­­­banka sem starfar að mestu á íslenskum mark­aði og var end­­­­ur­reistur af íslenska rík­­­­inu með íslenskum inn­­­­­­­stæð­­­­um.

Bón­us­greiðsl­­urnar sem stjórn­­endur LBI geta fengið ef vel gengur að selja eignir félags­­ins eru mun hærri en þær sem starfs­­menn Kaup­­þings eiga von á að fá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None