Hæstiréttur segir dómara ekki vanhæfa í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings

hreidar.jpg
Auglýsing

Hæsti­réttur Íslands hefur hafnað kröfu verj­enda þriggja sak­born­inga í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings um að tveir hæsta­rétt­ar­dóm­arar víki sæti í mál­inu. Mbl.is greinir frá þessu. 

Málið verður því tekið fyrir í Hæsta­rétti á föstu­dag­inn. 

Verj­endur höfðu kraf­ist þess að Þor­geir Örlygs­son og Ing­veldur Ein­ars­dóttir vikju sæti. Þor­geir vegna þess að sonur hans væri yfir­lög­fræð­ingur Kaup­þings ehf og hann hefði fjár­hags­lega hags­muni af því að sak­fellt yrði í málum gegn fyrr­ver­andi stjórn­endum og Ing­veldur vegna þess að sonur hennar hafi starfað fyrir emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara á árunum 2011 til 2013. 

Auglýsing

Hæsti­réttur sagði hins vegar að Kaup­þing ehf. hafi ekki fjár­hags­lega hags­muni af einka­málum sem rekin séu, þar sem Seðla­banki Íslands hafi gert það að skil­yrði þegar Kaup­þing sótti um und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höft­um. Rétt­ur­inn segir að sonur Ing­veldar hafi ekki sinnt málum sem vörð­uðu Kaup­þing í störfum sínum hjá sér­stökum sak­sókn­ara. 

Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, Sig­­urður Ein­­ar­s­­son, Ingólfur Helga­­son, Einar Pálmi Sig­­munds­­son, Birnir Sær Björns­­son, Pétur Krist­inn Guð­­munds­­son og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í stóra mark­aðs­mis­­­not­k­un­­ar­­máli Kaup­­þings í hér­­aðs­­dómi Reykja­víkur í júní í fyrra. Tveimur liðum ákæru á hendur Magn­úsi Guð­­munds­­syni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru born­­ar. Björk Þór­­ar­ins­dóttir var einnig sýknuð í mál­inu af ákæru fyrir umboðs­svik. 

Hreið­­ari Má var ekki gerð frek­­ari refs­ing, en hann afplánar nú þegar fimm og hálfs árs fang­els­is­­dóm vegna Al Than­i-­­máls­ins svo­­kall­aða. Sig­­urður Ein­­ar­s­­son fékk eins árs hegn­ing­­ar­auka við þann fjög­­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani- mál­inu. Ingólfur Helga­­son hlaut þyngsta dóminn, fjög­­urra og hálfs árs fang­elsi að frá­­­dregnu gæslu­varð­haldi sem hann sætti á sínum tíma. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær og Pétur Krist­inn fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm.

Farið var fram á að refsirammi yrði full­nýttur

Í mál­inu var hinum ákærðu, sem eru alls níu tals­ins, gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­­hags­­legs styrks bank­ans. ­­Stærð og umfang máls­ins á sér ekki hlið­­stæðu hér á landi. Aðal­­­með­­­ferð þess tók 22 daga og yfir 50 manns voru kall­aðir til­­ ­­sem vitn­i á meðan að hún stóð yfir. 

Þau níu sem voru ákærð eru Sig­­urður Ein­­ar­s­­son, fyrrum starf­andi stjórn­­­ar­­for­­maður Kaup­­þings, Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings, Magnús Guð­­munds­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings í Lúx­em­­borg, Ingólfur Helga­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri útlána, Einar Pálmi Sig­­munds­­son, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri eigin við­­skipta Kaup­­þings, Pétur Freyr Guð­mar­s­­son, fyrr­ver­andi starfs­­maður eigin við­­skipta, Birnir Sær Björns­­son, fyrr­ver­andi starfs­­maður eigin við­­skipta, og Björk Þór­­ar­ins­dótt­ir, sem sæti átti í lána­­nefnd Kaup­­þings.

Við aðal­­­með­­­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi fór Björn Þor­­valds­­son, sak­­sókn­­ari hjá emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara sem flutti mál­ið, fram á að refsiramm­inn fyrir mark­aðs­mis­­­not­k­un­­ar­brot yrði full­nýttur auk þess sem tekið yrði til­­lit til 72. greinar almennra hegn­ing­­ar­laga um aukna refs­ingu þegar hér­­að­­dómur fellir dóma yfir Hreið­­ari Má Sig­­urðs­­syni, Sig­­urði Ein­­ar­s­­syni og Ingólfi Helga­­syni í stóra mark­aðs­mis­­­not­k­un­­ar­­máli Kaup­­þings. Það þýðir að emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara fór fram á að þeir myndu allir fá níu ára fang­els­is­­dóma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None