Staðreyndavaktin hefur göngu sína á Kjarnanum

Staðreyndavaktin mun sannreyna fullyrðingar stjórnmálamanna og fer í loftið innan tíðar. Einnig mun Kjarninn birta svör staðreyndavaktar Vísindavefs Háskóla Íslands.

stadreyndavaktin.jpg
Auglýsing

Stað­reynda­vaktin er nýr liður á vef Kjarn­ans, sem hefur göngu sína innan tíð­ar. Á stað­reynda­vakt­inni verða full­yrð­ingar stjórn­mála­manna skoð­aðar og sann­leiks­gildi þeirra kann­að, en slíkt form frétta­skýr­inga er að ryðja sér til rúms víða um heim. 

Rit­stjórn Kjarn­ans mun fylgj­ast með ummælum sem látin eru falla og les­endur eru sér­stak­lega hvattir til þess að senda rit­stjórn ábend­ingar um efni sem þeir vilja láta kanna. Birtar verða frétta­skýr­ingar þar sem full­yrð­ingar og ummæli verða skoðuð og greind. Hægt er að senda ábend­ingar á net­fangið sta­dreynda­vakt­in@kjarn­inn.is

Stað­reynda­vaktin mun not­ast við fimm stiga ein­kunna­kvarða til þess að meta sann­leiks­gildi. Full­yrð­ingar sem teknar verða til skoð­unar munu fá eina af eft­ir­far­andi fimm ein­kunn­um: 



Auglýsing

Sam­starf við Vís­inda­vef­inn 

Kjarn­inn og Vís­inda­vefur Háskóla Íslands munu einnig eiga með sér sam­starf í stað­reynda­vökt­un, en Vís­inda­vef­ur­inn hefur stofnað sína eigin stað­reynda­vakt nú í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga, og verða svör frá sér­fræð­ingum Vís­inda­vefs­ins birt bæði þar og á vef Kjarn­ans. Ein­kunna­kvarði Kjarn­ans verður ekki not­aður af Vís­inda­vefn­um. 

Vís­inda­vef­ur­inn verður sér­stak­lega á vakt­inni hvað varðar spurn­ingar sem gætu vaknað í tengslum við kosn­inga­bar­áttu flokk­anna fyrir þing­kosn­ing­arnar í lok októ­ber. 

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, og Jón Gunnar Þor­steins­son, rit­stjóri Vís­inda­vefs­ins, munu sjá um fag­lega rit­stjórn svar­anna frá Vís­inda­vefn­um. 

Hægt er að senda inn spurn­ingar á for­síðu Vís­inda­vefs­ins, þar sem sjá má grænan hnapp sem á stendur Senda inn spurn­ingu. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiStaðreyndavaktin
None