Rekstrarfélag stjórnarráðsins fann ekki staðfest ummerki um innbrot í tölvu Sigmundar Davíðs

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagðist um helgina vita að brotist hafi verið inn í tölvu hans, og það hafi verið staðfest af öryggisfulltrúa í Stjórnarráðinu. Rekstrarfélag stjórnarráðsins segist hins vegar ekki hafa fundið nein staðfest ummerki um innbrot.

sigmundur davíð
Auglýsing

Engin stað­fest ummerki fund­ust um það að inn­brot hafi átt sér stað í tölvu Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, við ítar­lega skoðun rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins. 

Þetta kemur fram í svari rekstr­ar­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, en Sig­mundur Davíð hélt því fram í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. „Ég veit að það var brot­ist inn í tölv­una hjá mér,“ sagði Sig­­mundur Davíð í ræð­unni. Hann hafi látið yfir­­fara hana hjá örygg­is­­full­­trúa í stjórn­­­ar­ráð­inu og þar hafi fund­ist merki um að reynt hafi verið að brjót­­ast inn. Við eft­ir­grennslan Kjarn­ans um helg­ina stað­­festi Sig­­mundur Davíð það sem hann full­yrti í ræðu sinni um að reynt hafi verið að brjót­­ast inn í tölv­una hans.

Sig­mundur Davíð óskaði eftir því við rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins þann 1. apríl síð­ast­lið­inn að tölvan hans yrði skoðuð vegna „rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot“ í tölv­una. Þetta kemur fram í svari rekstr­ar­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Það er nokkrum dögum áður en hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra, en það gerði hann þann 5. apr­íl. 

Auglýsing

„Rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins sér um rekstur stað­ar­nets Stjórn­ar­ráðs­ins og þjón­ustar þær útstöðvar sem tengj­ast því, tölva for­sæt­is­ráð­herra er þar á með­al. Rekstr­ar­fé­lagið sér einnig um tölvu­ör­ygg­is­mál Stjórn­ar­ráðs­ins. Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot. Við ítar­lega leit fund­ust ekki stað­fest ummerki að inn­brot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guð­mundar Hall­dórs Kjærne­sted, fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­fé­lags­ins, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. 

Fyrr í dag greindi Vísir frá því að inn­brot í tölvu for­sæt­is­ráð­herra hefði ekki verið til­kynnt til rík­is­lög­reglu­stjóra, sem fer með brot gegn stjórn­­­skipan rík­­is­ins og æðstu stjórn­­völdum þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None