Haraldur segist hafa fengið grafalvarlega hótun frá ráðuneytisstjóra

ingsetning-2014_15083841870_o.jpg
Auglýsing

Har­aldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd Alþing­is, segir að ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, Guð­mundur Árna­son, hafi við­haft grafal­var­lega hótun í garð sinn og ann­arra í sím­tali þeirra á milli síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld. Hann seg­ist hafa sent Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra og yfir­manni Guð­mund­ar, form­legt kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins. 

Fyrr í dag var greint frá því að meiri­hluti fjár­laga­nefndar bók­aði það á fundi í morgun að „þing­­menn innan stjórn­­­ar­­meiri­hluta fjár­­laga­­nefndar hafa fengið beinar hót­­­anir um æru- og eigna­missi frá hátt­­settum emb­ætt­is­­manni eftir að skýrslan hafði verið kynnt.“ Eiga þeir þá við skýrsl­una sem kennd er við Vig­dísi Hauks­dótt­ur, for­mann nefnd­ar­inn­ar, og kall­ast Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ar­i. 

Guð­mundur greindi frá því sjálfur að hann teldi að þarna væri verið að tala um hann, og að hann hefði talað við Har­ald um mál­ið. Í því sam­tali tjáði ég honum þá skoðun mína og fleiri að ásak­­anir í skýrslu sem að sögn nýtur stuðn­­ings meiri­hluta nefnd­­ar­inn­­ar, þar á meðal hans, feli í sér rætnar og alvar­­legar ásak­­anir á hendur þeim sem komu að samn­ingum milli gömlu og nýju bank­anna af hálfu rík­­is­ins. Ég vildi ganga úr skugga um að hann átt­aði sig á alvar­­leika slíkra ásak­ana og að við áskildum okkur rétt til að láta reyna á per­­són­u­­lega ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram fyrir dóm­stól­um, enda æra okkar og starfs­heiður að veð­i,“ sagði Guð­mund­ur. 

Auglýsing

Har­aldur segir að „vegna alvar­leika sím­tals­ins hef ég leitað til umboðs­manns Alþingis eftir leið­bein­ing­um, upp­lýst for­seta Alþingis um efni sím­tals­ins og sent fjár­mála­ráð­herra, yfir­manni ráðu­neyt­is­stjór­ans, form­legt kvört­un­ar­bréf.“ 

Í sím­tal­inu hafi Guð­mundur kraf­ist þess að Har­aldur upp­lýsti um afstöðu sína til skýrsl­unn­ar. „Ég benti ráðu­neyt­is­stjór­anum á að nefndin ætti eftir að afgreiða málið og ég hefði ekki skrifað undir neinar ásak­an­ir, sem ráðu­neyt­is­stjór­inn taldi að fælust í áður­nefndri skýrslu.“ Har­aldur segir að skila­boð ráðu­neyt­is­stjór­ans hafi verið skýr. „Ætlun hans um að draga til ábyrgðar þá þing­menn sem tækju þátt í afgreiðslu skýrsl­unnar var aug­ljós með beinni hótun um að þeir skyldu þola æru- og eigna­missi.“ 

Har­aldur segir að sím­talið og sam­skipti Guð­mundar við sig sem alþing­is­mann og full­trúa í fjár­laga­nefnd hafi verið óvið­eig­andi og hótun í sinn garð og ann­arra grafal­var­leg. 

Hann hafi því að ráð­legg­ingu umboðs­manns Alþingis sent form­legt kvört­un­ar­bréf til ráð­herra þar sem meðal ann­ars hafi sag­t: Ummæli ráðu­neyt­is­stjór­ans voru ósam­boðin stöðu hans og virð­ingu sem æðsta emb­ætt­is­manns fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. 

Ég sé mig til­neyddan með bréfi þessu að leggja fram form­lega kvörtun yfir fram­komu ráðu­neyt­is­stjór­ans og jafn­framt að fara fram á að farið verði yfir mál hans og brugð­ist við eftir atvikum í sam­ræmi við rétt­indi hans og skyld­ur, sam­kvæmt við­eig­andi lög­um.“ 

Á meðan málið sé til með­ferðar segir Har­aldur ekki rétt að hann ræði það opin­ber­lega. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None